Bisk­upstungna­braut (35-08) um Geys­issvæð­ið

  • TegundVegir
  • StaðaKynningargögn
  • Verktími2031–2035
  • Markmið
      Greiðar samgöngurÖruggar samgöngur
  • Heimsmarkmið
      9. Nýsköpun og uppbygging11. Sjálfbærar borgir og samfélög
  • Flokkar
      EndurbæturBrúÖryggisaðgerðir
  • Svæði
    • Suðurland

Vegagerðin kynnir hér með fyrirhugaða vega- og brúarframkvæmd á rúmlega 5 km löngum kafla Biskupstungnabrautar (35) í Bláskógabyggð. Um er að ræða færslu Biskupstungnabrautar (35) frá Geysissvæðinu, þannig að umferðin fari fram hjá svæðinu í stað þess að liggja í gegnum það. Í tengslum við færslu vegarins þarf að byggja nýja brú á Tungufljót.

Efnisyfirlit

Fyrirhugað er að leggja nýjan 9 m breiðan veg sem liggur utan Geysissvæðisins, til að létta á svæðinu þar og staðla að bættu umferðaröryggi, og byggja nýja tvíbreiða brú yfir Tungufljót sem er í samræmi við markmið samgönguáætlunar um að fækka einbreiðum brúm á stofnvegum. Brúin á Tungufljóti er sú einbreiða brú sem hefur mesta umferð á landinu. Nýr vegur verður 5,1 km langur, af vegtegund C9.

Fyrirhugað framkvæmdasvæði mun liggja í allt að 1,5 km fjarlægð frá núverandi vegi, sem ætti að tryggja öryggi vegfarenda og ferðamanna á Geysissvæðinu, þar sem umferð keyrandi og gangandi á til með að blandast og skerast.

Áætluð efnisþörf framkvæmdarinnar er rúmlega 152.000 m3. Þar af koma tæplega 18.000 m3 úr skeringum og rúmlega 134.000 m3 úr námum. Á þessu stigi liggur ekki fyrir hvaða námur verða nýttar en þær sem eru til skoðunar eru allar nema ein á aðalskipulagi.

Kynningargögn