Vegagerðin, í samvinnu við Reykjavíkurborg og Mosfellsbæ, áformar að tvöfalda Suðurlandsveg frá vegamótum við Bæjarháls að Hólmsá ofan Reykjavíkur. Lagður verður 2+2 vegur og tengingum fækkað frá því sem nú er. Byggð verða þrenn mislæg vegamót. Gerðir verða nýir reið-, hjóla- og göngustígar.
Markmið framkvæmdarinnar er að auka umferðaröryggi allra fararmáta og tryggja greiðari umferð um Suðurlandsveg með því að aðskilja akstursstefnur. Lagt er upp með að vegurinn verði lagður í allt að fimm áföngum.
Suðurlandsvegur er aðalsamgönguleiðin frá höfuðborgarsvæði suður og austur um land, og er fyrirhugaður framkvæmdakafli umferðarþyngsti tveggja akreina vegur landsins. Þar að auki er spáð fyrir talsverðri umferðaraukningu á komandi áratugum vegna uppbyggingar í nálægum hverfum, eða um 30-50% til ársins 2030 og 50-60% til ársins 2040.
Við útfærslu breikkunar er gengið út frá að tvöfalda veginn í sömu veglínu með því að bæta við nýrri akbraut við þá sem fyrir er, að mestu fyrir norðan núverandi veg. Einnig verður komið fyrir hljóðvörn þar sem breikkaður vegur kemst næst byggð, t.a.m. við Seláshverfi.
Hugað er fyrir því að verkinu verði skipt í 5 áfanga. 1. áfangi er tvöföldun frá Bæjarhálsi að Norðlingavaði, um 1,9 km, auk gerð nýrra göngu- og hjólastíga við kaflann sem og hljóðvörn. 2. áfangi liggur frá Norðlingavaði og upp að Hólmsá, rúmlega 6,0 km. Þar á eftir snúa 3., 4. og 5. áfangi helst að gerð mislægra vegamóta við Breiðholtsbraut, Norðlingavað og Hafravatnsveg í stað hringtorga og T-vegamóta. Nánari upplýsingar um framkvæmdina má finna í kynningarmyndbandi, sem og matsskýrslum sem tilgreindar eru hér að neðan.