Um Hvallátur

  • TegundVegir
  • StaðaFramkvæmd hafin
  • Verktími2025–2026
  • Markmið
      Greiðar samgöngurJákvæð byggðaþróunÖruggar samgöngurUmhverfislega sjálfbærar samgöngur
  • Heimsmarkmið
      9. Nýsköpun og uppbygging
  • Flokkar
      EndurbæturBundið slitlag
  • Svæði
    • Vesturland

Vegagerðin kynnir fyrirhugaðar framkvæmdir á Örlygshafnarvegi (612) um Hvallátur í Látravík í Vesturbyggð. Til stendur að breyta núverandi Örlygshafnarvegi um Hvallátur og færa veginn út fyrir frístundahúsabyggðina sem þar er, vegna mikils ónæðis umferðar um svæðið. Framkvæmdarkaflinn er um 1,75 km langur.

 

Fyrirhugað er að leggja nýjan veg ofan við frístundabyggðina á Hvallátrum og beina með því umferðinni út úr byggðinni. Framkvæmdum verðurhagað þannig að neikvæð áhrif þeirra á umhverfið verði sem minnst. Samráð hefur verið haft við hagsmunaaðila og sveitarfélag við undirbúning framkvæmdarinnar. Vegagerðin telur að framkvæmdin hafi ekki í för með sér umtalsverð áhrif á umhverfið vegna umfangs, eðlis eða staðsetningar.

Sá hluti núverandi vegar sem leggst af, með nýrri legu vegarins ofan Hvallátra, er um 1,83 km langur malarvegur, með hæðar- og planlegu sem uppfyllir engar kröfur í veghönnunarreglum. Í gegnum byggðina á Hvallátrum eru 3 krappar beygjur á veginum, auk þess sem hann liggur innan við metra frá húsvegg. Vegurinn er að hluta til niðurgrafinn, mjór og ber ekki þá umferð sem um hann fer. Oft skapast vandamál í rigningu þar sem fljótt myndast djúpir pollar í veginum sem ógerlegt er að ræsa burt.

Nýr vegur mun uppfylla kröfur veghönnunarreglna Vegagerðarinnar. Hann verður upphækkaður vegur af gerðinni C7, lagður bundnu slitlagi og er allt þetta gert til þess að koma í veg fyrir ofangreind vandamál. Framkvæmdin er ekki talin munu hafa áhrif á vistkerfi umhverfis.

Samhliða færslu Örlygshafnarvegar um Hvallátur ákvað Vegagerðin að bjóða út, í sama útboði, endurbætur á um 3,8 km kafla við Patreksfjarðarflugvöll, milli slitlagsenda við Hvalsker og Kvígindisdals. Einungis er að ræða um endurbætur á þeim vegkafla þar sem framkvæmd verður í núverandi vegstæði og er framkvæmdin því ekki matsskyld.

Samið var við verktakann Flakkarinn ehf. af Brjánslæk, en voru þeir lægstbjóðendur í framkvæmdina, undir áætluðum verktakakostnaði. Áætluð verklok beggja framkvæmda eru seinni hluta 2026.


Sæki kort...