Verkið felst í endurbyggingu á 7 km kafla á núverandi vegi frá Vestfjarðarvegi að Ólafsdal. Endurbygging núverandi vegar felst í gerð styrktar- og burðarlaga sem og lagningu bundins slitlags. Núverandi vegur er jafnframt breikkaður. Innifalið í verkinu er gerð vegtenginga og allur frágangur.
Ekki er um eiginlega styttingu að ræða heldur fyrst og fremst vegabætur til að auka umferðaröryggi og greiðfærni, og efla menningartengda ferðaþjónustu á svæðinu.
Markmið framkvæmdarinnar er að bæta vegasamgöngur inn í Ólafsdal, auka umferðaröryggi og stuðla að greiðari samgöngum á svæðinu. Núverandi vegur milli Vestfjarðavegar og Ólafsdals er mjór malarvegur með slæma hæðar- og planlegu sem uppfyllir hvergi kröfur í veghönnunarreglum Vegagerðarinnar. Á köflum liggur hann um skriðurunnar hlíðar og við upphap vegkaflans er skilti sem á stendur „seinfarinn vegur.“ Nýr vegur verður breiðari en hinn eldri, með bundnu slitlagi og bættum sjónlengdum.
Mikil menningar- og ferðamannastarfsemi er í Ólafsdal þar sem stofnaður var fyrsti búnaðarskóli landsins á 19. öld og er svæðið sótt af hvort tveggja ferðamönnum og áhugamönnum sökum þess. Núverandi vegur uppfyllir ekki öryggiskröfur miðað við aukna umferð um svæðið. Framkvæmdin liggur hvergi innan verndarsvæðis, en er þó í grennd við verndarsvæði Breiðafjarðar.
Verkið var boðið út fyrri hluta 2025 og var samið við Þrótt ehf. á Akranesi. Tilboð þeirra hljóðaði upp á tæplega 86% af áætluðum verktakakostnaði og voru þeir lægstbjóðendur í verkið. Áætluð verklok eru í ágúst 2026.

Teikning sýnir framkvæmdarsvæði