Vegagerðin stóð fyrir endurbyggingu Snæfellsnesvegar á um 5,4 km kafla. Innifalið í verkinu var bygging tveggja brúa á Skraumu og Dunká. Vegurinn var að mestu endurbyggður í vegstæði núverandi vegar með nokkrum lagfæringum á einstaka köflum þar sem þörf þótti til að bæta akstursaðstæður og öryggi. Verktaki sem sinnti framkvæmdinni var Borgarverk ehf. en voru þeir einu þáttakendur útboðsferlisins.
Efnisyfirlit
Snæfellsnesvegur, Ketilstaðir-Gunnarsstaðir.
Vegagerðin og Borgarverk skrifuðu undir samning um framkvæmd við verkið Snæfellsnesvegur (54), Ketilsstaðir – Gunnarsstaðir í desember 2021. Verkið fól í sér endurbyggingu Snæfellsnesvegar á um 5,4 km kafla.
Innifalið í verkinu var bygging tveggja brúa á Skraumu og Dunká. Brúin á Skraumu er um 43 m löng, í þremur höfum og byggð upp af samverkandi stálbitum og steyptu brúardekki. Milliundirstöður eru tvær hallandi stálsúlur í hvorri undirstöðulínu með stífandi krossum á milli.
Brúin á Dunká er um 52 m löng staðsteypt uppspennt plötubrú í tveimur höfum. Milliundirstaðan er lóðrétt staðsteypt súla. Hún stendur á steyptri undirstöðu sem grunduð er á klöpp vestan megin við megin rennsli árinnar, þar sem klöpp liggur ofan árfarvegarins.
Þessi nýframkvæmd veldur því að í flóðum eða klakahlaupum getur vatn og ís náð upp á súlur brúanna án þess að valda skaða eða öðrum áhrifum á burðarvirki þeirra.

Framkvæmdasvæðið nær frá Ketilsstöðum að Gunnarsstöðum.

Brú yfir Skraumu verður 43 m. löng.