Klofn­ings­vegur: Vest­fjarðar­vegur – Kýrunnar­stað­ir

  • TegundVegir
  • StaðaFramkvæmd lokið
  • Verktími2023–2024
  • Markmið
      Greiðar samgöngurJákvæð byggðaþróunÖruggar samgöngurUmhverfislega sjálfbærar samgöngur
  • Heimsmarkmið
      8. Góð atvinna og hagvöxtur9. Nýsköpun og uppbygging
  • Flokkar
      SamgöngukerfiðVegirEndurbæturÖryggisaðgerðirBundið slitlagVerktaki - Mjölnir ehf.Verktaki - Vestfirskir verktakar ehf.
  • Svæði
    • Vesturland

Framkvæmdin fól í sér endurbyggingu á 8,3 km löngum kafla á Klofningsvegi (590), milli Vestfjarðarvegar (60) og Kýrunnarstaða í Hvammssveit í Dalabyggð. Sú endurbygging snerist um gerð styrktar- og burðarlaga sem og lagningu bundins slitlags. Vegurinn var jafnframt breikkaður. Innifalið í verkinu var gerð vegtenginga og allur frágangur.

Klofningsvegur: Vestfjarðarvegur – Kýrunnarstaðir

Tengd útboð


Markmið framkvæmdarinnar

Markmið framkvæmdarinnar voru að bæta vegasamgöngur við Hvammsfjörð, auka umferðaröryggi og stuðla að greiðari samgöngum á svæðinu. Fyrri vegur var fremur mjór malarvegur og með slæma hæðarlegu og er nýr, endurbyggður vegur breiðari en sá sem fyrir var, með bundnu slitlagi og bættum sjónlengdum. Um eiginlega styttingu var ekki að ræða, heldur fyrst og fremst vegabætur til að auka umferðaröryggi og efla byggð á svæðinu.

Framkvæmdin átti sér nokkurn aðdraganda þar sem Dalabyggð hafði um árabil óskað eftir því að Klofningsvegur yrði lagður klæðingu. Einnig höfðu íbúar og hagsmunaaðilar á Fellsströnd og Skarðsströnd í Dalabyggð skorað á Vegagerðina að ráðast í úrbætur.

Kostnaðaráætlun var 530 millj. kr og var framkvæmdin fjármögnuð af Tengivegasjóði.

Tengd gögn