Vegagerðin stóð fyrir endurbætum á tengingu Þverárfjallsvegar og Skagastrandavegar við Hringveg austur af Blönduós. Einnig var byggð tvíbreið brú yfir Laxá í Refasveit. Framkvæmdin fól í sér breytingu á vegaskipulagi þar sem Þverárfjallsvegur (73, áður 744) breyttist úr tengiveg yfir í stofnveg milli Blönduóss og Sauðárkróks, sökum talsverðar umferðaraukningu.
Efnisyfirlit
Hringvegur – Þverárfjallsvegur
Þverárfjallsvegur (73) í Refasveit og Skagastrandarvegur (74) um Laxá (EES)
Þverárfjallsvegur (73) í Refasveit og Skagastrandarvegur (74) um Laxá, eftirlit (EES)
Nýframkvæmd Þverárfjallsvegar (73) var um 8,5 km og náði hún frá Hringvegi (1) austan Blönduóss að fyrrverandi Þverárfjallsvegi (áður 744) skammt austan við núverandi brú á Laxá. Nýframkvæmd Skagastrandarvegar (74) var um 3,3 km löng og náði hún frá nýjum Þverárfjallsvegi (73) um nýja brú yfir Laxá að núverandi Skagastrandarvegi (74) norðan við Höskuldsstaði í Skagabyggð. Hönnun tíu minni vegtenginga/heimreiða voru hluti af verkinu en lengd þeirra nam um 4,5 km. Heildarlengd vega í framkvæmd var því um 16,3 km. Auk þess var um að ræða nýja brú yfir Laxá, um 110 m að lengd og eftirlitsstað til þungaeftirlits.
Verkefni þessu var hrundið af stað m.a. vegna þess að fyrrverandi brú yfir Laxá var orðin talsvert gömul og sinnti ekki auknum umferðarþunga sem fór um hana, en umferð um svæðið hefur aukist rúmlega tvöfalt síðan um aldamót.
Verkið var boðið út um sumar 2021 og bárust þrjú tilboð í verkið. Samið var við Skagfirska verktaka en tilboð þeirra hljóðaði á um 108% af fyrirhugaðari kostnaðaráætlun og var þar af lægsta tilboð.