Borgarlínan, lota 5, mun liggja frá Stórhöfða að Spöng, samtals um 4 km leið. Nánari upplýsingar má finna á Borgarlínan.is og Verksjá.is.
Nánar má fræðast um Borgarlínuna á vef verkefnisins, borgarlinan.is
Verkefnið er hluti af Samgöngusáttmálanum sem ríkið og sex sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu (Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes) hafa undirritað.
Samgöngusáttmálinn felur í sér sameiginlega framtíðarsýn og heildarhugsun fyrir skipulagssvæðið. Markmiðið er að auka öryggi, bæta samgöngur fyrir alla ferðamáta og minnka tafir, stórefla almenningssamgöngur og draga úr mengun af völdum svifryks og losun gróðurhúsalofttegunda til að standa við loftslagsmarkmið stjórnvalda og sveitarfélaga.

Borgarlínan, lota 5.