Hamra­borg-Ár­túns­höfði

  • TegundVegir
  • StaðaFramkvæmd ekki hafin
  • Markmið
      Greiðar samgöngurÖruggar samgöngurJákvæð byggðaþróunUmhverfislega sjálfbærar samgöngur
  • Heimsmarkmið
      11. Sjálfbærar borgir og samfélög13. Aðgerðir í loftslagsmálum
  • Flokkar
      SamgöngusáttmáliBorgarlínaAlmenningssamgöngur
  • Svæði
    • Höfuðborgarsvæðið

Borgarlínan, lota 1, felst í að hanna og byggja sérrými fyrir Borgarlínuvagna, á um 14,5 km löngum kafla. Lota 1 nær frá Hamraborg í Kópa­vogi um miðborg Reykjavíkur að Ártúnshöfða, samtals um 14,5 km. Unnið er að forhönnun á lotu 1.

Hamraborg-Ártúnshöfði

    Nánar má fræðast um Borgarlínuna á vef verkefnisins, borgarlinan.is Þar er m.a. að finna frumdragaskýrslu að fyrstu lotu.

    Verkefnið er hluti sáttmála um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu sem ríkið og sex sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu (Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes) hafa undirritað.

    Samgöngusáttmálinn felur í sér sameiginlega framtíðarsýn og heildarhugsun fyrir skipulagssvæðið. Markmiðið er að auka öryggi, bæta samgöngur fyrir alla ferðamáta og minnka tafir, stórefla almenningssamgöngur og draga úr mengun af völdum svifryks og losun gróðurhúsalofttegunda til að standa við loftslagsmarkmið stjórnvalda og sveitarfélaga.

     


    Borgarlínan lota 1, Hamraborg Ártúnshöfði.

    Borgarlínan lota 1, Hamraborg Ártúnshöfði.