
Vegagerðin mun halda opinn fund í Vestmannaeyjum 2. júní þar sem fjallað verður um Landeyjahöfn. Farið verður yfir hvernig dýpkun hefur gengið undanfarin ár í samanburði við nýliðinn vetur. Þá verða kynntar frumniðurstöður skýrslu dönsku dönsku straumfræðistofunnar DHI A/S.
Forstjóri Vegagerðarinnar og sérfræðingar hennar verða með erindi þar sem þetta hvorttveggja er kynnt og að því loknu verður opnað fyrir spurningar frá fundargestum.
Vinna DHI A/S hófst haustið 2024. Markmiðið með vinnunni var að finna leiðir til að auka nýtingu Landeyjahafnar. Fyrsta skrefið var að setja upp sandburðarlíkan og var unnið með 15 ára gagnasafn til að kvarða líkanið sem er tilbúið. Líkanið hefur síðan verið nýtt til þess að skoða mögulegar breytingar á höfninni og umhverfinu í kringum hana.
Á fundinum verða kynntar frumniðurstöður þessara rannsókna og hugmyndir Vegagerðarinnar varðandi næstu skref.
DHI A/S hefur unnið í samstarfi við Vegagerðina að rannsóknum á ýmsum stöðum á Íslandi bæði í Landeyjahöfn og annars staðar. Stofan hefur víðtæka reynslu og þekkingu á þessu fræðasviði.