Horf­­um fram á veginn

  • Hvar?Grand Hótel Reykjavík.
  • Hvenær?15. apríl 2026
  • Skráning á viðburðinnSkrá mig

Horfum fram á veginn – ráðstefna um verk­efna­stýr­ingu stór­fram­kvæmda og viðhalds.

Á ráðstefnunni verður sjónum beint að einni stærstu áskoruninni í innviðauppbyggingu á Íslandi, hvernig Vegagerðin tekst á við innviðaskuld, skipulagningu, stýringu og forgangsröðun framkvæmda og viðhalds á skilvirkan og sjálfbæran hátt. Fjallað verður um verkefnastýringu og hvernig Vegagerðin vinnur markvisst að því að bæta og auka hana til þess m.a. að tryggja að áætlanir standist sem best.

Innlendir og erlendir sérfræðingar halda erindi þar sem farið verður yfir áherslu á þróun verklags, nýtingu á tækni og verkefnastýringu.

 


Aðalmynd

Skráning á viðburðinn
Dagskrá ráðstefnunnar
Tími 
Dagskrá 
Fyrirlesari /Hlutverk 
9:00
Opnun ráðstefnu
 Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri, Vegagerðin
Ávarp ráðherra
Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra
 Getting Big Things Done on Budget and on Time
Dan Gardner, rithöfundur og verðlaunablaðamaður
10:20
Kaffi
Asset Management - Focus on Operation and Maintenance of State Roads in Denmark
Michael Ebbesen, framkvæmdastjóri reksturs og viðhalds, danska Vegagerðin
Protecting the Value of the Nation’s Greatest Asset
 Arndís Ósk Ólafsdóttir Arnalds, framkvæmdastjóri mannvirkjasviðs, Vegagerðin
 Pallborðsumræður
12:10
Hádegisverður
Slitlög á mannamáli
Bergþóra Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustusviðs, Vegagerðin
Gagnadrifin ákvarðanataka í viðhaldi
Oddur Hagalín Sigurðsson, forstöðumaður stoðsviðs og Pálmi Þór Sævarsson, svæðisstjóri Vestursvæðis, Vegagerðin
 Sjálfshjálparfyrirlestur fyrir stjórnendur á tímum óvissu og áhættu
Þórður Víkingur Friðgeirsson, dósent, Háskólinn í Reykjavík
Verkefnastjórnsýsla hjá Vegagerðinni
 Margrét Silja Þorkelsdóttir, svæðisstjóri Norðursvæðis, Vegagerðin
14:40
Kaffi
Samgönguáætlun í framkvæmd: Hver er árangurinn?
Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs, Vegagerðin
Varðan - verkefnastjórnunarkerfi Vegagerðarinnar
Rúna Ásmundsdóttir, deildarstjóri tæknideildar Norðursvæðis, Vegagerðin
Af hverju tekur allt svona langan tíma?
Bryndís Friðriksdóttir, svæðisstjóri Höfuðborgarsvæðis, Vegagerðin
16:10
Ráðstefnulok og léttar veitingar



Dan og bókin

How Big Things Get Done

Dan Gardner er annar höfunda metsölubókarinnar How Big Things Get Done.
Hér má lesa bókarýni af vef Independent Institute.



Lesa grein →

Aðalfyrirlesari verður Dan Gardner, kanadískur metsöluhöfundur á lista New York Times og verðlaunablaðamaður. Bækur hans, þar á meðal Superforecasting og How Big Things Get Done (skrifuð með Bent Flyvbjerg prófessor við Oxford-háskóla), hafa mótað alþjóðlega umræðu um hvernig megi bæta ákvarðanatöku og stýringu flókinna verkefna. Verk hans hafa verið gefin út í tugum landa og þýdd á yfir tuttugu tungumál.

Meðal annarra fyrirlesara er Michael Ebbesen, framkvæmdastjóri mannvirkjasviðs hjá dönsku Vegagerðinni. Hann greinir frá því hvernig danska Vegagerðin vann á mikilli uppsafnaðri innviðskuld með áhrifaríkum hætti.

Með ráðstefnunni er markmiðið að skapa vettvang fyrir faglegt samtal, sameiginlega sýn og betri ákvarðanatöku í opinberum framkvæmdum.