Rann­sókna­ráðstefna Vega­gerðar­innar 2021

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar var haldin í 20. sinn föstudaginn 29. október og fór fram á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut. Ráðstefnunni er ætlað að endurspegla afrakstur hluta þess rannsókna- og þróunarstarfs, sem styrkt er af rannsóknasjóði Vegagerðarinnar.

Á ráðstefnunni kenndi margra grasa. Haldnir voru 15 fyrirlestrar um rannsóknarverkefni og kynnt 13 veggspjöld. Ari Trausti Guðmundsson, jarðfræðingur, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, hóf ráðstefnuna með erindi sem bar heitið „Náttúran og pólitíkin“.

Styrkur rannsóknasjóðs Vegagerðarinnar hefur legið í því að styrkja verkefni á mjög breiðu fræðasviði þar sem ekki einvörðungu er einblínt á hefðbundna vegagerð. Verkefnin falla þó undir fjóra almenna flokka sem eru: mannvirki, umferð, umhverfi og samfélag.

Ráðstefnan var afar vel sótt en hátt í 300 manns voru skráðir. Um breiðan hóp er að ræða sem samanstendur af starfsfólki Vegagerðarinnar, starfsmönnum ráðgjafa- og verkfræðistofa, verktökum og almennu áhugafólki um samgöngur og rannsóknir.

Ráðstefnustjóri var G. Pétur Matthíasson.

Ráðstefnan fór fram á Reykjavík Hilton Nordica.

Heiti og flytjendur erindanna:

Setning, Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar 
Náttúran og pólitíkin, Ari Trausti Guðmundsson, jarðfræðingur, fyrrv. alþingismaður og rithöfundur. – Ágrip
Malarslitlög – ekki bara drullaHafdís Eygló Jónsdóttir, Vegagerðin – Ágrip
Tæring málma í andrúmslofti á ÍslandiVigdís Bjarnadóttir og Baldvin Einarsson, Efla hf. – Ágrip
Endurskoðun jarðtæknistaðalsins Eurocode 7Þorgeir Helgason, Verkís hf., Davíð R. Hauksson, VSÓ Ráðgjöf ehf. og Þorri Björn Gunnarsson, Mannvit hf. – Ágrip
Slitþolin hástyrkleikasteypa 50 mm á brýr – þróun og blöndunHelgi S. Ólafsson, Vegagerðin – Ágrip
Stauraundirstöður fyrir brýrAndri Gunnarsson, Efla hf. – Ágrip
Gagnvirkar hraðahindranirKatrín Halldórsdóttir, Vegagerðin – Ágrip
Áhrif örflæðis í samgöngulíkani, Albert Skarphéðinsson, Mannvit hf. – Ágrip
Borgarskipulag og ferðavenjur á höfuðborgarsvæðinuHarpa Stefánsdóttir, NMBU – Ágrip
Mælingar á færslu óstöðugra fláa í rauntíma og langtíma – Siglufjarðarvegur,
Guðjón Örn Björnsson og Heiðar Karlsson, Vista ehf. og VSÓ Ráðgjöf ehf. – Ágrip
Notkun gagna veggreinis í umferðaröryggisstjórnunÞorbjörg Sævarsdóttir, Vegagerðin – Ágrip
Farsímagögn í umferðarlíkanGrétar Mar Hreggviðsson, VSÓ Ráðgjöf ehf. – Ágrip
Endurheimt staðargróðurs á framkvæmdasvæðumSteinunn Garðarsdóttir, LBHÍ – Ágrip
Grænar raforkulausnir fyrir vita byggðar á efnarafölumAtli Már Ágústsson, Efla hf. – Ágrip
Sjálfbærnimat íslenskra vegaframkvæmda – tilviksrannsókn á nýjum Suðurlandsvegi,
Sandra Rán Ásgrímsdóttir, Mannvit hf. – Ágrip
Kortlagning á neðansjávarskriðum í Seyðisfirði og Norðfirði, Ögmundur Erlendsson og Anett Blischke, ÍSOR – Ágrip

Veggspjöld til sýnis á 20. Rannsóknarstefnu.

Burðarþolspróf á brú yfir Steinavötn í Suðursveit, Atli Geir Ragnarsson, Verksýn ehf., Einar Óskarsson, Aron Bjarnason, Guðmundur Valur Guðmundsson og Ólafur Sveinn Haraldsson, Vegagerðin
Evrópustaðlar og Efnisgæðarit VegagerðarinnarPétur Pétursson, Vegagerðin
Gerð vindhviðu kortaþekju fyrir helstu þjóðvegiEinar Sveinbjörnsson og Sveinn Gauti Einarsson, Veðurvaktin ehf.
Grímsvötn: vatnsgeymir, jökulhlaup, upphaf og rennsliFinnur Pálsson og Eyjólfur Magnússon, Háskóli Íslands (vantar hlekk)
Kerfi sjávarborðsmælinga, G. Orri Gröndal og Sigurður Sigurðarson, Vegagerðin
Samanburður á mælingum á sjávarborði og líkanreikningum með Delft3D-FM og greining áhrifaþátta strandflóða 2020Kévin Dubois, Angel Ruiz-Angulo, Halldór Björnsson, Sigurður Sigurðarson and G. Orri Gröndal, Veðurstofan og Vegagerðin
Samanburður á mælingum á sjávarborði og líkanreikningum með Delft3D-FM og greining áhrifaþátta strandflóða 2021Kévin Dubois, Angel Ruiz-Angulo, Halldór Björnsson, Sigurður Sigurðarson and G. Orri Gröndal, Veðurstofan og Vegagerðin
Samsetning og uppruni svifryks í HvalfjarðargöngumGísli Guðmundsson, Háskólinn í Reykjavík
Sandflutningar við Suðurströndina – Vík í MýrdalSigurður Sigurðarson, Kjartan Elíasson, Ingunn E. Jónsdóttir, Bryndís Tryggvadóttir, Pétur I. Sveinbjörnsson, G. Orri Gröndal, Sunna Viðarsdóttir og Fannar Gíslason, Vegagerðin 
Structural Analysis and modelling of a reinforced concrete bridge based on full scale dataÞórunn Vala Jónasdóttir og Jónas Þór Snæbjörnsson, Háskólinn í Reykjavík
Sveigjanleg og aðlögunarhæf skipulagsgerð fyrir hafnir, Majid Eskafi, Guðmundur F. Úlfarsson, Gunnar Stefánsson, Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, Ali Dastgheib, Poonam Taneja, Háskóli Íslands
Tarva – Mat á aðgerðum sem stuðla að bættu umferðaröryggiArna Kristjánsdóttir, Berglind Hallgrímsdóttir og Ragnar Gauti Hauksson, Efla hf. 
Þróun á endafrágangi brúa til að lágmarka viðhald vega við brúarendaMagnús Arason, Baldvin Einarsson og Ingvar Hjartarson, Efla hf.
Ólafur Sveinn Haraldsson forstöðumaður rannsókna hjá Vegagerðinni.

Ólafur Sveinn Haraldsson forstöðumaður rannsókna hjá Vegagerðinni.

G. Pétur Matthíasson var ráðstefnustjóri.

G. Pétur Matthíasson var ráðstefnustjóri.