Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar var haldin í Hörpu, föstudaginn 1. nóvember 2019 í átjánda sinn.
Fundarstjóri var G. Pétur Matthíasson
Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar 2019

| Setning, Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar |
| Hvað mun okkur finnast? – Um gildismat framtíðarinnar, Bergur Ebbi, rithöfundur, ljóðskáld og ritgerðarsmiður. – Ágrip |
| Notkun Coltrack við að gera malarvegi að bundu slitlagi á Íslandi, Björk Úlfarsdóttir, Malbikunarstöðin Hlaðbær Colas HF – Ágrip |
| Endurvinnsla frálagsefna í vegagerð, Þorbjörg Sævarsdóttir, EFLA – Ágrip |
| Umhverfisvæn brúarsteypa, Ólafur Wallevik, Rb við Nýsköpunarmiðstöð Íslands |
| Úttektir og ástandsmat klæðinga á Vestfjörðum, Pétur Pétursson, PP-ráðgjöf – Ágrip |
| Burðargeta steyptra brúa – brotprófun brúar á Steinavötn, Guðmundur Valur Guðmundsson, Vegagerðin – Ágrip |
| Þróun á kerfi sjávarborðsmælinga [erindi féll niður], G.Orri Gröndal, Vegagerðin – Ágrip |
| Mikilvægi mótlægra umferðarljósa, Haraldur Sigþórsson, VHS – Ágrip |
| Slysagreining. Ávinningur af óhindruðum beygjustraumum. Anna Guðrún Stefánsdóttir, Verkís – Ágrip |
| Rannsóknarverkefni um mat á tíðni rauðljósaaksturs, Berglind Hallgrímsdóttir, Daði Baldur Ottósson, EFLA – Ágrip |
| Áhrif 5G á samgönguinnviði í framtíðinni, Hrönn Karolína Sch. Hallgrímsdóttir og Gunnar Páll Stefánsson, Mannvit – Ágrip |
| Samflutningur farþega og farms – bættar almenningssamgöngur á landsbyggðinni, Andreas Macrander, Hjólafærni, Sesselja Traustadóttir, Hjólafærni og Ingi Gunnar Jóhannsson, Hugarflug ehf. – Ágrip |
| Áreiðanleiki hviðuspáa í Harmonie-Arome líkaninu, fylgni spáa, viðvarana og mælinga, Elín Björk Jónasdóttir og Ingibjörg Jóhannesdóttir, Veðurstofan – Ágrip |
| Greining á kerfum og vinnuumhverfi í vaktstöð Vegagerðarinnar, Halla Katrín Svölu- og Arnardóttir, EFLA – Ágrip |
| Rafbílar – áhrif á hljóðstig og tíðniróf, Kristinn Örn Björnsson, EFLA – Ágrip |
| Losun svifryks frá gatnakerfinu á höfuðborgarsvæðinu – ferlar og líkan [erindi flutt á ensku], Brian Barr, Háskóla Íslands – Ágrip |
| Samsetning og uppruni svifryks í Hvalfjarðargöngunum, Gísli Guðmundsson, Rb við Nýsköpunarmiðstöð Íslands – Ágrip |
| Greining á samfélagslegum og hagrænum ávinningi bættra samgangna – rýni á rannsóknaraðferðum, Eva Dís Þórðardóttir, EFLA – Ágrip |
| Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og Vegagerðin, Bryndís Skúladóttir, VSÓ – Ágrip |
| Notkun efnisins Humidur við brúar- og bryggjuviðgerðir. Sjótækni ehf. |
| Prófanir á mélusýnum sem notuð eru í malbik hérlendis. Pétur Pétursson, PP ráðgjöf |
| Samgönguskipulag og sjálfbærni. Ólöf Kristjánsdóttir, Mannvit |
| Samþætting hjólreiða og Borgarlínu. Jóhanna Helgadóttir, EFLA |
| Vöruflutningar – vörumóttaka. Jakob Jóhann Sveinsson og Svanhildur Jónsdóttir (VSÓ) |

Bergur Ebbi, rithöfundur, ljóðskáld og ritgerðasmiður, heldur upphafserindi ráðstefnunnar. Erindið ber heitið; Hvað mun okkur finnast? Um gildismat framtíðarinnar. Bergur er með fjölþættan bakgrunn úr heimi lista, viðskipta og blaðamennsku. Meðal umfjöllunarefna í verkum Bergs Ebba er tæknisaga og áhrif hennar á sjálfsmynd fólks, stjórnmál, valdajafnvægi, breytt heimsmynd, tíska og tíðarandi. Bergur Ebbi er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og með MDes gráðu í Strategic Foresight and Innovation frá OCAD Háskólanum í Toronto í Kanada auk þess að leggja stund á lögfræði og listasögu við Université deCergy Pontoise í París.

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2019

Bergþóra Þorkelsdóttir