Rann­sókna­ráðstefna Vega­gerðar­innar 2013

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar var haldin í Hörpu, föstudaginn 8. nóvember 2013. Þetta var sú tólfta í röðinni.
Kveðið er á í vegalögum um að 1,5% af mörkuðum tekjum til vegamála skuli renna til rannsókna- og þróunarstarfs og er ráðstefnunni ætlað að endurspegla afrakstur hluta þess starfs.

Ráðstefnan var haldin í Kaldalónssal Hörpu.

Erindin á ráðstefnunni:

Setning, Þórir Ingason (Vegagerðin)
Vetrarblæðingar, mat og greining áhrifsþátta – yfirlit – [ágrip]
(Haraldur Sigursteinsson, Vegagerðin)
Forensic analysis of winter failure in surface dressing and failure mechanism explained – [ágrip]
(erindi flutt á ensku  Nicole Kringos og Björn Birgisson , KTH)
Hönnunar leiðbeiningar fyrir brýr – [ágrip]
(Gylfi Sigurðsson, Vegagerðin)
Eignastýring þjóðvegakerfisins – greining áhrifa og ávinnings – [ágrip]
(Árni Freyr Stefánsson, Mannvit)
Landlíkanagerð með ljósmyndatöku úr bíl og ómannaðri flugvél – ágrip
(Sigurður Hrafnsson, UAS Iceland ehf. og Ólafur Haraldsson, Designing Reality)
Umferðarmerki á Íslandi – Innlend þróun og aðlögun að alþjóðlegum viðmiðum – [ágrip]
(Birna Hreiðarsdóttir, Norm ráðgjöf ehf.)
Öryggi farþega í hópbifreiðum – [ágrip]
(Kristjana Erna Pálsdóttir, VSÓ Ráðgjöf)
Forgangur og öryggi gangandi vegfarenda á gönguþverunum – [ágrip]
(Hörður Bjarnason, Mannvit)
Samanburður hávaðavísa – hljóðmælingar og greining – [ágrip]
(Ólafur Daníelsson, Efla)
Innlendur saltpækill til hálkuvarna – [ágrip]
(Skúli Þórðarson. Vegsýn)
Samsetning svifryks í Reykjavík – ágrip
(Páll Höskuldsson, Efla)
Hagkvæmni og umhverfisávinningur metanvinnslu á landsbyggðinni – [ágrip]
(Dofri Hermannsson, Metanorka)
Áhrifamat í vegagerð endurtekið efni eða lærdómur í 20 ár? – [ágrip ]
(Auður Magnúsdóttir, VSÓ Ráðgjöf)
Tillaga að viðbótum við vefþjónustu Vegagerðarinnar – [ágrip]
(Sveinn Ólafsson, Gagnahnit ehf.)
Snjókort af Íslandi og skafrenningsspár – [ágrip]
(Hróbjartur Þorsteinsson, Veðurstofa Íslands)
Vatnssöfnun undir sigkötlum Mýrdalsjökuls vöktuð með íssjá – [ágrip]
(Eyjólfur Magnússon, Háskóla Íslands)
Samgöngubætur og byggðaþróun: Félagsleg, efnahagsleg og menningarleg áhrif Héðinsfjarðarganga á mannlíf á norðanverðum Tröllaskaga – [ágrip]
(Þóroddur Bjarnason, Háskólinn á Akureyri)
Áætlunarflug innanlands – Félagshagfræðileg greining – [ágrip]
(Ásta Þorleifsdóttir og Vilhjálmur Hilmarsson, Innanríkisráðuneytið)
Þróun á nýrri slitsterkri steypu
(Ólafur H. Wallevik, Nýsköpunarmiðstöð Íslands)

Veggspjöld til sýnis á ráðstefnunni:

Heiti verkefnis Ábyrgðarmenn / Höfundar
Áhrif sjávar á blöndun og ísbráðnun í Jökulsárlóni á Breiðamerkursandi Jón Ólafsson1,2, Helgi Björnsson1, Finnur Pálsson1, Andri Gunnarsson3, Sveinbjörn Steinþórsson1 og Einar Björn Einarsson4
1Jarðvísindastofnun HÍ, 2Hafrannsóknastofnun, 3Landsvirkjun, 4Jökulsárlón ehf.
Ástandsvöktun brúa Guðmundur Valur Guðmundsson1, Kristján Uni Óskarsson1, Einar Þór Ingólfsson4, Bjarni Bessason2, Baldvin Einarsson1 og Aron Bjarnason3
— 1Efla, 2Háskóli Íslands, 3Vegagerðin, 4Krabbenhøft Aps
Bræðsluborun í sigketil innan Kötluöskjunnar Þorsteinn Þorsteinsson, Tómas Jóhannesson, Bergur Einarsson og Vilhjálmur Kjartansson
— Veðurstofa Íslands
Eyðing skógarkerfils með vegum Brynhildur Bjarnadóttir1, Jónas Vigfússon2 og Bjarni E. Guðleifsson3
— 1Háskólinn á Akureyri, 2Sveitarfélagið Eyjafjarðarsveit, 3Landbúnaðarháskóli Íslands, Möðruvellir
Fleytitíð – Álagstoppar í morgunumferð einkabíla og almenningssamgangna Kristjana Erna Pálsdóttir
— VSÓ RÁÐGJÖF 
Flóðahandbók – uppfærsla á M5 úrkomukorti Skúli Þórðarson1, Jónas Elíasson2
— 1Vegsýn, 2Háskóli Íslands
Mat á hönnunarflóði ómældra vatnasviða með notkun svæðisbundinnar tíðnigreiningar og sjálfvirkri greiningu einsleitra svæða Philippe Crochet og Tinna Þórarinsdóttir
— Veðurstofa Íslands
Measurements of the ice surface elevation of glaciers in Iceland with lidar – (Mælingar á yfirborði og yfirborðsbreytingum íslenskra jökla með leysimælingum) Tómas Jóhannesson1, Helgi Björnsson2, Sverrir Guðmundsson2, Eyjólfur Magnússon2, Finnur Pálsson2, Oddur Sigurðsson1, Árni Snorrason1 og Þorsteinn Þorsteinsson1.
— 1Veðurstofa Íslands, 2Jarðvísindastofnun HÍ
Námuvefur Gunnar Bjarnason1, Matthildur Bára Stefánsdóttir1, Björn Stefánsson2, Ragnheiður Ólafsdóttir3, Sigurrós Friðriksdóttir2
— 1Vegagerðin, 2Umhverfisstofnun, 3Landsvirkjun
Notkun svarðlags við uppgræðslu námusvæða Ása L. Aradóttir1, Hersir Gíslason2
— 1Landbúnaðarháskóli Íslands, 2Vegagerðin
Ráðstefnur Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands 2014 Ólafur H. Wallevik, Jón E. Wallevik, Kristján F. Alexandersson, Sunna Ó. Wallevik og Björn Hjartarson
— Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Steinsteypunefnd Björn Hjartarson
— Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Umhverfisvænt sementslaust steinlím Sunna Ó. Wallevik
— Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Veggirðingar. Leiðbeiningar og vinnulýsingar Ingvi Árnason1, Grétar Einarsson2
— 1Vegagerðin, 2Landbúnaðarháskóli Íslands
Vegslóðar – endurheimt staðargróðurs og landslags Anna Sigríður Valdimarsdóttir1, Kristín Svavarsdóttir2 og Ása L. Aradóttir1
— 1Landbúnaðarháskóli Íslands, 2Landgræðslan
Þróun rennslislyklahugbúnaðar fyrir almenna notkun Helgi Sigurðarson1, Birgir Hrafnkelsson1, Sigurður Magnús Garðarsson1 og Jórunn Harðardóttir2
— 1Háskóli Íslands, 2Veðurstofa Íslands
Haraldur Sigursteinsson

Haraldur Sigursteinsson

Rannsóknarráðstefnan 2013

Rannsóknarráðstefnan 2013