16. júní 2026
Breyt­ingar á leiða­kerfi lands­byggða­strætó hafa áhrif á fimm leið­ir af tutt­ugu og fimm

Gerðar verða breytingar á fimm leiðum landsbyggðarvagna af 25 leiðum sem starfræktar eru í leiðakerfi landsbyggðastrætó á vegum Vegagerðarinnar um land alltBreytingar á fjórum leiðum taka gildi í haust en ein snýr að sumaráætlun. Engar breytingar eru gerðar á tuttugu leiðum. Breytingarnar eru gerðar til að halda kostnaði vegna reksturs landsbyggðavagna innan áætlana á fjárlögum. 

Við mat á breytingum var einkum horft til nýtingar og farþegafjölda á einstökum leiðum. Breytingar beinast einkum að ferðum eða ferðatíma þar sem nýting er lág. Dregið verður úr ferðatíðni á þremur leiðum en þar beinast breytingar að ferðum utan álagstíma í því skyni að draga sem mest úr áhrifum á farþega. 

Breytingar 

  • Leið 50 (Vestur- og Norðvesturland) – 11 ferðir á dag á virkum dögum í stað 12 ferða á Akranes. Fækkun um eina ferð í hvora átt á virkum dögum utan álagstíma. 
  • Leið 51 (Suðurland) – 14 ferðir á dag á virkum dögum í stað 16 ferða. Eftir fjölgun ferða í upphafi árs var nýting ekki næg til að halda uppi meiri tíðni. 
  • Leið 71 (Suðurland) – 4 ferðir á dag á virkum dögum í stað 5 ferða. 
  • Leið 73 (uppsveitir Suðurlands) – Leiðin leggst af en nýting hefur verið mjög lítil. 
  • Leið 61 (Vestfirðir) – Ekki verður ekið í sumar.  

Allar breytingar taka gildi í haust að undanskilinni þeirri síðastnefndu.  

Óbreytt áætlun á tuttugu leiðum 

Breytingar sem taka gildi í haust hafa ekki áhrif á eftirtaldar tuttugu leiðir: 

  1. Leið 52 (Suðurland) 
  2. Leið 53 (Suðurland) 
  3. Leið 72 (Suðurland) 
  4. Leið 55 (Suðurnes) 
  5. Leið 56 (Norður og Norðausturland) 
  6. Leið 57 (Vestur- og Norðvesturland) 
  7. Leið 58 (Vestur- og Norðvesturland) 
  8. Leið 59 (Vestur- og Norðvesturland) 
  9. Leið 62 (Vestfirðir) 
  10. Leið 78 (Norður og Norðausturland) 
  11. Leið 79 (Norður og Norðausturland) 
  12. Leið 82 (Vestur- og Norðvesturland) 
  13. Leið 84 (Vestur- og Norðvesturland) 
  14. Leið 87 (Suðurnes) 
  15. Leið 89 (Suðurnes) 
  16. Leið 91 (Austurland) 
  17. Leið 92 (Austurland) 
  18. Leið 93 (Austurland)