Ferjurnar Baldur og Herjólfur munu báðar sigla til og frá Vestmannaeyjum frá og með mánudeginum 8. júní. Þetta fyrirkomulag verður við lýði meðan unnið er að viðgerð á einni vél Herjólfs sem bilaði í apríl. Gert er ráð fyrir að viðgerð á vélinni ljúki upp úr miðjum júní.

Ferjan Særún mun sinna siglingum til Flateyjar á Breiðafirði í fjarveru Baldurs og tryggja þjónustu við samfélagið þar. Siglingaáætlun fyrir Breiðafjörð verður kynnt innan skamms.
Vegna mikilla anna í flutningum til og frá Vestmannaeyjum á næstunni var talið nauðsynlegt að varaskipið Baldur bættist við ferjuþjónustu til Eyja á þessu tímabili. Miklir flutningar eru fyrirhugaðir á fólki og farartækjum, m.a. vegna íþróttaviðburða um helgar.
Vegna erfiðra aðstæðna og óhagstæðs veðurfars hefur lítið mátt út af bregða að siglingaáætlun Herjólfs raskist. Þegar Herjólfur siglir aðeins á einni vél getur skipið illa siglt til Landeyjahafnar ef ölduhæð fer yfir 2 m og/eða ef vindur er yfir 12 m/s en það er ekki óalgengt á þessum árstíma.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra kynnti þessar breytingar á íbúafundi sem Vegagerðin hélt í Vestmannaeyjum síðdegis í dag. Samráð hefur verið haft við heimamenn í Eyjum og í Breiðafirði vegna þessara breytinga sem eru til komnar vegna vélarbilunar Herjólfs.
Breiðafjarðarferjan Baldur hefur um árabil verið varaskip fyrir Herjólf og heimild er fyrir því í samningum Vegagerðarinnar við rekstraraðila skipsins að Baldur taki við verkefnum Herjólfs við sérstakar aðstæður. Þær aðstæður sköpuðust þegar alvarleg bilun kom upp í annarri af tveimur aðalvélum Herjólfs. Við þetta bættist óvenju óhagstætt veðurfar og bilanir í dæluskipi við Landeyjahöfn.
Vél Herjólfs er mjög sérhæfður búnaður og því þurfti að senda hana úr landi til viðgerða. Þá daga sem vélinni er komið aftur fyrir í skipinu mun Baldur leysa skipið af.
Búist er við miklum úrbótum við dýpkun Landeyjahafnar þegar belgíski verktakinn Jan de Nul tekur við dýpkun í haust, með mun öflugri búnaði og viðbragði en nú þekkist. Aðstæður í Landeyjahöfn hafa verið erfiðar í vetur, óhagstæð veðurskilyrði hafa torveldað dýpkun og bilanir komið upp í dýpkunarskipi sem sinnti verkefninu. Vegagerðin samdi við fyrirtækið til ársins 2029 en það eitt hið stærsta í heiminum á þessu sviði.
