10. júní 2026
Arnar­nesvegur tekur á sig mynd

Nýr Arnarnesvegur og tengdar framkvæmdir eru óðum að taka á sig mynd. Unnið er við uppsetningu umferðarljósa við gatnamót Breiðholtsbrautar og Arnarnesvegar og er áætlað að opna þennan veghluta fyrir umferð um næstu mánaðamót.

Á morgun, fimmtudaginn 11. júní, verður umferð á Breiðholtsbraut færð yfir á syðri akrein milli Jaðarsels og Vatnsendahvarfs vegna framkvæmda við ný vegamót Breiðholtsbrautar og Arnarnesvegar. Vinna við færslu umferðarinnar hefst klukkan 6 að morgni og henni lýkur um kl. 9 daginn eftir.

Á brúnni er akbraut og göngu- og hjólastígur.

Á brúnni er akbraut og göngu- og hjólastígur.

Góður gangur er í framkvæmdum við Arnarnesveg, þriðja áfanga, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar. Nú styttist í að nýja brúin yfir Breiðholtsbraut verði tilbúin en þar er unnið að frágangi, ásamt vegtengingum sitt hvoru megin við brúna, eða frá Breiðholtsbraut að Vatnsendavegi. Á brúnni er bæði akbraut og göngu- og hjólastígur.

Skammt frá, eða við vegamót Breiðholtsbrautar og Vatnsendahvarfs, stendur yfir vinna við jarðvegsskipti og í vegstæði Arnarnesvegar, milli Vatnsendavegar og Rjúpnavegar, er unnið við fyllingar og frágang ofanvatnslagna.

Ljósastaurar settir upp

Við göngu- og hjólastíginn, sem verið er að leggja austan við veginn, er unnið við uppsetningu ljósastaura og frágang burðarlags undir malbik. Samhliða þessum framkvæmdum er unnið við malbikun og umhverfisfrágang og þegar er búið að þökuleggja hluta svæðisins.

Bygging nýrrar göngubrúar við Arnarnesveg á móts við Turnahvarf er langt komin og unnið er að lokafrágangi hennar. Við nýju undirgöngin, sem eru í byggingu undir Arnarnesveg við Rjúpnaveg, er unnið við stoðveggi sem koma við enda undirganganna.

Umferðin færð tímabundið

Vegna færslu umferðar um Breiðholtsbraut eru vegfarendur sérstaklega beðnir um að virða merkingar, fylgja hraðatakmörkunum og sýna aðgát við framkvæmdasvæðið.

Verkið heyrir undir Samgöngusáttmálann og er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkur, Kópavogs, Betri samgangna, Veitna og Mílu. Verktakar eru Suðurverk og Loftorka og VSB sér um eftirlit.

Áætluð verklok Arnarnesvegar og tengdra framkvæmda eru eftir tæplega hálft ár, eða í nóvember 2026.

Ljósmyndir / Vilhelm Gunnarsson

Nánari upplýsingar um framkvæmdina er að finna hér.

 

Búið er að þökuleggja hluta af svæðinu.

Búið er að þökuleggja hluta af svæðinu.

Áætluð verklok eru í nóvember 2026.

Áætluð verklok eru í nóvember 2026.

Unnið er við göngubrú yfir Arnarnesveg.

Unnið er við göngubrú yfir Arnarnesveg.

Arnarnesvegur, séð frá Rjúpnavegi.

Arnarnesvegur, séð frá Rjúpnavegi.

Hér sést vel yfir nýja göngubrú sem er í smíðum.

Hér sést vel yfir nýja göngubrú sem er í smíðum.

Brúin yfir Dimmu er mikið notuð.

Brúin yfir Dimmu er mikið notuð.