Verk­stjóri á þjón­ustu­stöð, Patreks­fjörður

  • StarfssvæðiVestfirðir
  • Tegund starfsÖnnur störf
  • Starfshlutfall100%
  • Umsóknarfrestur22. júní 2026

Starf verkstjóra við þjónustustöðina á Patreksfirði er laust til umsóknar. Verkstjóri hefur umsjón og eftirlit með verkefnum á þjónustustöðinni og unnið sé í samræmi við áætlanir og öryggisstefnu Vegagerðarinnar. Verkstjóri er staðgengill yfirverkstjóra. 

Vegagerðin rekur 18 þjónustustöðvar víðs vegar um landið og sjá þær um almenna þjónustu og viðhald vega og vegbúnaðar á sínu starfssvæði. Hlutverk þjónustustöðva er að sjá til þess að ástand vega, vegsvæða og samgöngumannvirkja sé þannig að umferð gangi sem greiðast og öruggast fyrir sig, allan ársins hring.

Helstu verkefni

  • Almenn þjónusta, eftirlit og verkstjórn í viðhaldi vega, jarðganga og vegbúnaðar á svæði þjónustustöðvarinnar. 
  • Eftirlit í vetrarþjónustu með færð á vegum, upplýsingagjöf og stjórnun snjómoksturs í samvinnu við yfirverkstjóra og vaktstöð Vegagerðarinnar.
  • Samskipti og eftirlit með verktökum.
  • Vinnur bakvaktir í vetrarþjónustu og er aðgengilegur ef þörf skapast, s.s. vegna veðurs, náttúruvár og slysa.
  • Gætir að öryggi starfsfólks þjónustustöðvar og vegfarenda á vinnusvæðum og fylgir öryggisreglum þar að lútandi.

Hæfniskröfur

  • Iðnmenntun æskileg eða annað nám sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af stjórnun æskileg.
  • Vinnuverndar- og öryggisnámskeið æskileg.
  • Almenn ökuréttindi er skilyrði, meirapróf og/eða vinnuvélaréttindi æskileg.
  • Starfsreynsla sem nýtist í starfi.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta.
  • Mjög góð tölvukunnátta.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp.
  • Góð öryggisvitund.

Frekar upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Verkstjórafélag Vestfjarða hafa gert.

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.

Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu, auk afrita af prófskírteinum. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar veitir

Bríet Arnardóttir
yfirverkstjóri

briet.arnardottir
@vegagerdin.is