Þjónustusvið Vegagerðarinnar leitar eftir öflugum einstaklingi til að sinna verkefnastjórn og sérfræðiráðgjöf á vegaþjónustudeild. Starfsmaður gegnir hlutverki öryggisfulltrúa jarðganga. Vegagerðin er ábyrgðaraðili 12 jarðganga á Íslandi og er ábyrgð á daglegum rekstri þeirra á höndum Vegagerðarinnar á viðkomandi svæði. Þjónustusvið Vegagerðarinnar ber ábyrgð á öryggismálum og samræmingu á rekstri allra jarðganga. Þjónustusvið Vegagerðarinnar ber einnig ábyrgð á samræmingu og þróun í rekstri vegakerfisins auk upplýsingagjafar því tengdu.
Á þjónustusviði starfa um 55 starfsmenn á fjórum deildum sem eru: Almenningssamgöngur, tækjabúnaðardeild, vöktun og upplýsingar og vegaþjónusta. Starfið er auglýst án staðsetningar þar sem Vegagerðin er með svæðisstöðvar í öllum landsfjórðungum.
Frekari upplýsingar um starfið
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu, auk afrita af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið