Við leitum að metnaðarfullum og skipulögðum sumarstarfsmanni til að taka þátt í verkefni sem snýr að stafrænni umbreytingu gagna.
Starfið felur í sér úrvinnslu og stafræna skráningu pappírsgagna sem nú eru skráð í Lotus Notes. Verkefnið er hluti af stærra umbótaverkefni þar sem unnið er að því að draga úr pappírsnotkun og færa gögn yfir í rafrænt form.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Í umsókninni komi fram upplýsingar um fyrri störf og þær hæfnikröfur sem óskað er eftir. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.