Starfs­maður á véla­verk­stæði Reyðar­firði

  • StarfssvæðiAusturland
  • Tegund starfsIðnstörf
  • Starfshlutfall100%
  • Umsóknarfrestur31. ágúst 2026

Leitum að starfsmanni á vélaverkstæði á Reyðarfirði. Starfið er fjölbreytt og felur í sér viðhald, eftirlit og þjónustu við ýmiss konar vélar, tæki og búnað. 
Styttri ferðir innan Austursvæðis tilheyra starfinu og því er mikilvægt að viðkomandi sé tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni, bæði á verkstæði og úti á starfsstöðvum.         Við hvetjum einstaklinga með góða verklega og tæknilega færni til að sækja um. 
Vegagerðin á Austursvæði nær frá Gígjukvísl á Skeiðarársandi að Sandvíkurheiði í Vopnafirði og rekur þjónustustöðvar í Fellabæ, á Reyðarfirði og á Höfn í Hornafirði, ásamt vélaverkstæði á svæðismiðstöð á Reyðarfirði.  

Helstu verkefni

  • Þjónusta við vélar, tæki og búnað á þjónustustöðvum á Austursvæði.
  • Viðhald og eftirlit með bílum, búnaði og tækjum Vegagerðarinnar.
  • Uppsetning og viðhald á vegbúnaði og mælitækjum.

Hæfniskröfur

  • Verkleg og/eða tæknileg færni sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af viðhaldi, viðgerðum á vélum ökutækjum eða öðrum tæknilegum búnaði.
  • Vélvirki, bifélavirki eða önnur iðnmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Vinnuvélaréttindi, æskileg.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og hæfni að vinna í teymi.
  • Gott vald á íslensku og ensku.
  • Góð öryggisvitund.
  • Hæfni til að nota tölvur og stafrænar lausnir í starfi.

Frekar upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Í umsókninni komi fram upplýsingar um fyrri störf og upplýsingar um þær hæfnikröfur sem óskað er eftir, auk afrita af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið

Nánari upplýsingar veitir

Sveinn Vilberg Stefánsson
yfirmaður vélaverkstæðis

sveinn.v.stefansson
@vegagerdin.is
Páll Birgir Jónsson
deildarstjóri þjónustudeildar

pall.b.jonsson
@vegagerdin.is