Vegagerðin óskar eftir traustum starfsmanni til að sinna fjölbreyttum verkefnum á þjónustustöðinni í Garðabæ.
Unnið er á opnunartíma þjónustustöðvar en starfsmenn eru þar að auki á föstum vöktum frá október-apríl alla daga vikunnar, vegna eftirlits með færð og vetrarþjónustu.
Vegagerðin rekur 18 þjónustustöðvar víðs vegar um landið og sjá þær um almenna þjónustu og viðhald vega og vegbúnaðar á sínu starfssvæði. Hlutverk þjónustustöðva er að sjá til þess að ástand vega, vegsvæða og samgöngumannvirkja sé þannig að umferð gangi sem greiðast og öruggast fyrir sig, allan ársins hring.
Almenn dagleg þjónusta og viðhald á vegakerfinu á starfssvæði þjónustustöðvarinnar.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi.
Áhugasamir einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og færni viðkomandi til að gegna starfinu. Afrit af ökuréttindum þarf að fylgja umsókn. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.