Við leitum að öflugum einstaklingi í starf deildarstjóra umsjónardeildar á Austursvæði. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og felur í sér verkefnastýringu nýframkvæmda og viðhalds á starfssvæði Vegagerðarinnar á Austursvæði.
Umsjónardeild ber ábyrgð á umsjón og eftirliti með framkvæmdum á svæðinu. Í samráði við mannvirkjasvið sinnir deildin viðhaldi bundinna slitlaga, styrkingum og endurbótum ásamt efnisvinnslu á svæðinu. Svæðismiðstöð Vegagerðarinnar er á Reyðarfirði og hægt verður að nýta starfsaðstöðu þjónustustöðvarinnar í Fellabæ.
Deildarstjóri leiðir starfsemi umsjónardeildar og sýnir gott fordæmi í öryggismálum. Deildarstjóri hefur yfirsýn yfir stöðu verkefna, framvindu þeirra og kostnað.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsókn skal fylgja afrit af prófskírteinum, ferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi veitir upplýsingar um fyrri störf og hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem gerðar eru. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.