Vegagerðin leitar að framsæknum einstaklingi í fjölbreytt og krefjandi starf deildarstjóra þjónustudeildar á Vestursvæði. Deildarstjóri ber ábyrgð á stjórnun og rekstri deildarinnar og hefur yfirumsjón með öllum þjónustuverkefnum svæðisins sem nær frá Hvalfirði að sunnan og að Holtavörðuheiði, miðja Laxárdalsheiði og suður Innstrandaveg að Stikuhálsi.
Á þjónustudeild Vestursvæðis starfa um 45 starfsmenn á þjónustustöðvum í Búðardal, Hólmavík, Ólafsvík og Patreksfirði, auk þjónustustöðvar og vélaverkstæðis á Ísafirði, og þjónustustöðvar og vélaverkstæðis á svæðismiðstöð Vestursvæðis í Borgarnesi.
Starfsstöð deildarstjóra þjónustu á Vestursvæði er á Ísafirði en á starfsstöðinni starfa um 30 manns.
Deildarstjóri leiðir starfsemi þjónustudeildar og tryggir að þjónustuverkefnum sé sinnt í samræmi við verklag.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Í umsókninni komi fram upplýsingar um fyrri störf og upplýsingar um þær hæfnikröfur sem óskað er eftir, auk afrita af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.