Rannsóknaráð umferðaröryggismála (RANNUM) var stofnað þann 20.desember 2000.
RANNUM samstarfið varaði í 5 ár og að því stóð Vegagerðin, Rauði kross Íslands, Landspítali-háskólasjúkrahús, Umferðarráð, Ríkislögreglustjóri, Skráningarstofan, Rannsóknarnefnd umferðarslysa, Reykjavíkurborg, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Samband íslenskra tryggingafélaga, Landlæknir, Félag íslenskra bifreiðaeigenda, Tækniskóli Íslands, Ökukennarafélag Íslands, Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins og Háskólinn á Akureyri.
Verkefni styrkt af Rannum 2000 – 2008
Þrátt fyrir það að RANNUM samstarfinu sé lokið, er enn þá veitt fé úr rannsókna- og þróunarsjóði Vegagerðarinnar til rannsókna á þessu sviði. Útkomnar skýrslur um þær rannsóknir má finna hér
Hlutverk RANNUM var að standa fyrir hvers konar rannsóknum sem nýta má til að koma í veg fyrir umferðarslys og draga úr afleiðingum slysa.
Ráðinu var einnig ætlað að hvetja til, eiga frumkvæði að, skipuleggja, framkvæma og styðja rannsóknir á sviði umferðaröryggis ásamt því að fylgjast með erlendum rannsóknum og kanna notagildi þeirra fyrir íslenskt samfélag.
Markmið starfsins var að afla nýrrar þekkingar innanlands og utan, leiða saman þá aðila sem vinna á þessu sviði og gera þannig rannsóknirnar faglegri og markvissari.
Skýrslur sem komu út um verkefnin sem RANNUM styrkti eru birtar hér fyrir neðan. Athugið að höfundar hverrar skýrslu bera ábyrgð á innihaldi hennar. Niðurstöður skýrslna ber ekki að túlka sem yfirlýsta stefnu Vegagerðarinnar eða álit þeirra stofnana eða fyrirtækja sem höfundar starfa hjá.
Eldri ökumenn í umferðinni á Íslandi (Kjartan Þórðarson, Valdimar Briem) |
Öryggi barna í umferðinni: Slys og fræðsla (Valdimar Briem) |
Áhrif bættrar heilsu á öryggi bifreiðastjóra þungra bifreiða á Íslandi (Lovísa Ólafsdóttir) |
Kostnaður umferðarslysa eftir alvarleika (Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, Haraldur Sigþórsson, Þórólfur Nielsen) |
Yfirlit yfir þróunarverkefni um umferðarfræðslu í grunnskólum 2002-2004 (Ásta Egilsdóttir) |
Hraðatakmarkandi aðgerðir (Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir) |
Umferðarslys og vindafar – Áfangaskýrsla II (Skúli Þórðarson, Jónas Þór Snæbjörnsson, Laila Sif Cohagen) |
Slysatíðni vöru- og hópbifreiða – Áfangi II (Skúli Þórðarson, Guðmundur Freyr Úlfarsson) |
Sálfræðilegar afleiðingar dauðaslysa (Eiríkur Jón Líndal, Valdimar Briem) |
Umferðaróhöpp og meiðsli eldri ökumanna (Guðmundur Freyr Úlfarsson) |
Umferðarslys erlendra ferðamanna á bílaleigubílum 2000-2004 (Ásdís J. Rafnar, Inga Hersteinsdóttir, Jón Baldursson) |
Umferðarkannanir 1985-2002 (Valdimar Briem, Kjartan Þórðarson) |
Slysatíðni vöru- og hópbifreiða (Skúli Þórðarson, Guðmundur Freyr Úlfarsson) |
Tengsl aldurs bifreiða og umferðaróhappa (Kristján V. Rúriksson, Sævar J. Solheim) |
Bílbeltanotkun atvinnubílstjóra (Slysavarnafélagið Landsbjörg, Umferðarstofa) |
Tegund drifbúnaðar og slysatíðni (Einar Einarsson, Elísabet Árnadóttir) |
Aukið aðhald = Aukið umferðaröryggi (New Development) |
Skilgreining áhættumælikvarðans fatal accident rate (FAR) fyrir umferðaröryggi á Íslandi (Inpro ehf.) |
Skyndihjálp í framhaldsskólum (Sigurjón Jónsson) |
Könnun á skyndihjálparkennslu í framhaldsskólum (Sigurjón Jónsson) |
Vindur og umferðaröryggi 1997-2004 (Þórólfur Nielsen) |
Hverjir aka um þjóðveginn? (Lögreglan á Blönduósi, Óríon ráðgjöf, Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands) |
Ný viðhorf í umferðaröryggismálum (Birna Hreiðarsdóttir) |
Bílbeltanotkun ökumanna í þéttbýli (Slysavarnafélagið Landsbjörg, Umferðarstofa) |
Sálrænir þættir í umferðaslysum ungra ökumanna (Valdimar Briem, Kjartan Þórðarson, Ásþór Ragnarsson) |
Áhættuhegðun ungra ökumanna (Rannsóknir og greining) |
Viðhorf flutningabílstjóra til þekkingar og þjálfunar í skyndihjálp (Arna Magnúsdóttir, Katrín Guðmundsdóttir) |
Fækkun umferðarslysa á Norðurlandi (Ástríður Grímsdóttir, Björn Mikaelsson, Daníel Snorrason, Valur Magnússon) |
Slysatíðni breyttra jeppa (Árni Jónsson, Skúli Þórðarson, Guðmundur Freyr Úlfarsson) |
Umferðarslys og vindafar (Skúli Þórðarson, Jónas Þór Snæbjörnsson) |
Ungir ökumenn: Rannsókn á aksturshegðun karla og kvenna (Haukur Freyr Gylfason, Rannveig Þórisdóttir, Marius Peersen) |
Tillögur að bættu umferðaröryggi bifhjólafólks sem byggja á skýrslu um bifhjólaslys 1991-2000 (Njáll Gunnlaugsson, Ágúst Mogensen) |
Skyndihjálp í grunnskólum (Sigurður Arnar Sigurðsson) |
Umferðarfræðsla í grunnskóla sem hluti af lífsleikni (Ásta Egilsdóttir, Sigurður Arnar Sigurðsson) |
Ljósvaki: Smíði og hönnun tækis til mælinga á endurskini vegstika (Kristinn Fannar Pálsson) |
Hættulegar beygjur á þjóðvegi 1 (New Development) |
Umferðarfræðsla í skólum – Áfangaskýrsla (Benedikt Sigurðarson) |
Banaslys í umferðinni 2001 (Rannsóknarnefnd umferðarslysa) |
Slysagreiningar, áverkastig og áverkaskor – Lyklunarkerfi fyrir skráningar á áverkum (Brynjólfur Mogensen) |
Útafakstur (Rannsóknarnefnd umferðarslysa) |