Á mínum síðum Vegagerðarinnar geta notendur skráð sig inn með rafrænum skilríkjum í gegnum island.is. Tjónstilkynningar eru opnar allt árið, en styrkumsóknir til rannsóknasjóðs Vegagerðarinnar og umsóknir um styrkvegi opna fyrir innsendingar einu sinni á ári og eru sérstaklega auglýstar.
Mínar síður Vegagerðarinnar
Þegar skemmdir hafa orðið á ökutæki og viðkomandi telur að það megi rekja til ástands vegar, er unnt að tilkynna atvik til Vegagerðarinnar.
Skv. vegalögumnr. 80/2007 er heimilt að ákveða fjárveitingu í vegáætlun til að styrkja tilteknar samgönguleiðir sem ekki falla undir skilgreiningar vega skv. lögunum.
Aðilar innan og utan Vegagerðarinnar geta sótt um fjárframlög til rannsóknaverkefna, sem tengjast starfsemi stofnunarinnar.