Almyrkvi á sólu 2026

Almyrkvi á sólu er ein stórfenglegasta sýning náttúrunnar. Þann 12. ágúst 2026 gengur almyrkvi yfir Norðurskautið, Grænland, Ísland, Portúgal og Spán, en deildarmyrkvi sést víða í Norður-Ameríku, Skandinavíu, Evrópu og Vestur-Afríku.

Á Íslandi fer mjó almyrkvaslóð yfir vestasta hluta landsins. Alskuggi tunglsins snertir fyrst land við Straumsnesvita á Hornströndum kl. 17:43:28 og stendur þar í 1 mínútu og 26 sekúndur. Lengst verður myrkvinn við Látrabjarg, um 2 mínútur og 13 sekúndur.

Skuggi tunglsins ferðast yfir jörðina á um 3400 km hraða á klukkustund og færist yfir Snæfellsnes, Reykjavík og Reykjanesskaga áður en hann yfirgefur landið við Reykjanestá kl. 17:50:07. Þar varir almyrkvinn í um 1 mínútu og 47 sekúndur.

Í heild stendur almyrkvinn yfir á Íslandi í um 6 mínútur og 48 sekúndur. Þaðan heldur skugginn áfram suður yfir Atlantshafið og nær til Spánar um 35 mínútum síðar, þar sem almyrkvi verður við sólsetur á Mallorca.

Kort og myndefni


Skoða kort og myndir


Vegalokanir

Vegna almyrkvans sem verður sýnilegur á Íslandi 12. ágúst 2026 er búist við verulegri aukningu í umferð á ákveðnum svæðum landsins. Til að tryggja öryggi vegfarenda og greiða fyrir umferð verður gripið til tímabundinnar umferðarstýringar á nokkrum vegum Vegagerðarinnar.

⚠️ Mikilvægar upplýsingar um umferðarstýringu

Umferðarstýringin hefst klukkan 8:00 þann 12. ágúst 2026 og stendur fram yfir atburðinn, eftir því sem þörf krefur.

Gera má ráð fyrir að hámarkshraði verði lækkaður á þessum degi. Vegfarendur eru hvattir til að sýna þolinmæði og gera ráð fyrir lengri ferðatíma.

Reykjanes

Á Reykjanesi verður umferðarstýring á eftirfarandi vegum:

Garðskagavegur (45) frá Nesvegi að Sandgerði

Vatnsleysustrandarvegur (420) frá Vogum að Kúagerði

Þessar ráðstafanir eru gerðar til að stýra aukinni umferð á svæðinu þar sem búist er við miklum fjölda gesta sem vilja fylgjast með almyrkvanum.

Snæfellsnes

Einstefna verður frá Búðum að Hellissandi.

Öndverðarnesvegur (579) lokaður en boðið verður upp á rútuferðir fyrir þá sem vilja, á vegum Snæfellsjökulsþjóðgarðs

Dalabyggð

Einstefna verður á Klofningsvegi (590)

Vestfirðir

Á Vestfjörðum verða eftirfarandi vegir með tímabundna einstefnu:

Örlygshafnarvegur (612)

Rauðasandsvegur (614)

Lokunarpóstur verður settur upp við gatnamót Barðastrandarvegar (62) og Örlygshafnarvegar (612) eigi síðar en kl. 08:00 að morgni 12. ágúst. Lokun gæti þó orðið fyrr ef aðstæður krefjast.

Einstefna verður á veginum fram að viðburði.

Rútur að stærð allt að 19+1 farþega mega aka um veginn. Stærri ökutækjum verður ekki heimilt að aka um veginn þann 12. ágúst.

Hámarkshraði verður:

  • 60 km/klst. að Breiðuvík
  • 50 km/klst. frá Breiðuvík að Látrabjargi vegna aukinnar gangandi umferðar á svæðinu

Stranglega er bannað að leggja ökutækjum á veginum eða á vegöxlum. Ökutæki sem lagt er ólöglega verða fjarlægð á kostnað eigenda.

Æskilegt er að setja upp sambærilega merkingu á Útnesvegi (574) á Snæfellsnesi, þar sem lögregla hyggst einnig láta fjarlægja ökutæki sem lagt er ólöglega.


Flutningsaðilar

Vegna mikils umferðarálags sem búast má við á vesturhelmingi landsins miðvikudaginn 12. ágúst í tengslum við almyrkvann, beinir Vegagerðin því til flutningsaðila, vöruflutninga-, fiskflutninga- og eldsneytisfyrirtækja að takmarka akstur eins og kostur er þann dag.

Búast má við mjög mikilli umferð á helstu leiðum á Vesturlandi og Vestfjörðum, auk aukinnar hættu á töfum, þrengslum og skertu umferðaröryggi. Með því að draga úr þungaflutningum á svæðinu má stuðla að betra flæði umferðar, auknu öryggi vegfarenda og greiðari aðkomu neyðar- og þjónustuaðila ef þörf krefur.

Vegagerðin hvetur fyrirtæki og flutningsaðila til að:

  • fresta flutningum ef unnt er,
  • skipuleggja akstur utan álagstíma,
  • takmarka ferðir um mestu álagssvæðin þann 12. ágúst.

Við þökkum flutningsaðilum fyrir samvinnu og skilning vegna þessa umfangsmikla umferðarviðburðar. 

Umferðarstýring

Megintilgangur þessara ráðstafana er að tryggja greiða leið viðbragðsaðila ef neyðartilvik koma upp, þar sem búast má við mjög mikilli umferð á þessum vegum. Með skipulagðri umferðarstýringu er einnig leitast við að draga úr hættu á umferðarteppum og bæta öryggi allra vegfarenda.

Samstarf við viðbragðsaðila

Skipulagning og framkvæmd umferðarstýringarinnar er unnin í nánu samstarfi við lögreglu og aðra viðbragðsaðila á viðkomandi svæðum. Vegfarendur eru hvattir til að fylgja leiðbeiningum lögreglu og umferðarstjórnenda og sýna aðgát á svæðunum.

Umferðarstýring vegna almyrkvans 12. ágúst 2026

Gildir frá 8:00 og fram yfir atburð. 

📍 Reykjanes

Garðskagavegur (45): Nesvegur → Sandgerði

Vatnsleysustrandarvegur (420): Vogar → Kúagerði

📍 Snæfellsnes

Útnesvegur (574): Búðir → Hellissandur

Öndverðarnesvegur (579): lokaður – boðið upp á rútuferðir fyrir þá sem vilja á vegum þjóðgarðsins á Snæfellsnesi.

📍 Dalabyggð

Klofningsvegur (590): Hvammsveit → Fellsströnd → Skarðsströnd → Saurbær

📍 Vestfirðir

Örlygshafnarvegur (612): Barðastrandarvegur → Örlygshöfn

Rauðasandsvegur (614): Barðastrandarvegur → Rauðisandur

🚧 Markmið umferðarstýringar:
Að tryggja greiða leið viðbragðsaðila, draga úr umferðarteppum og auka öryggi vegfarenda þar sem búast má við mikilli umferð vegna almyrkvans.


Myndefni

 

Sólmyrkvi 2026

Allar aðrar upplýsingar um þennan stórkostlega atburð má finna hér.


Skoða nánar →