Vegagerðin býður hér með út útlögn malbiks og blettaviðgerðir á malbikuðum slitlögum á vegum á Vestursvæði árið 2026. Allar framkvæmdir í þessu útboði eru á Vesturlandi.
•Malbik 40/45/50/60 mm | 22.620 m2 |
Fræsing | 322 m2 |
Yfirborðsmerkingar (merkingalengd) | 4.300 m |
Malbiksviðgerðir | 322 m2 |
Verki skal að fullu lokið 15. ágúst 2026.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 20. apríl 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 5. maí 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Athygli bjóðenda er vakin á því að talsverðar breytingar eru á útboðsgögnunum frá fyrra ári.
| Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
|---|---|---|---|
Colas Ísland ehf., Hafnarfirði | 263.197.785 | 181,3 | 13.652.347 |
Malbikun Norðurlands, Akureyri | 254.163.150 | 175,1 | 4.617.712 |
Malbikun Akureyrar, Akureyri | 249.545.438 | 171,9 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 145.139.500 | 100,0 | 104.405.938 |