Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið á leiðinni Einarsstaðir – Möðrudalsvegamót. Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, tvö ár í senn. Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 40.000 km á ári.
Verklok eru í apríl 2026.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 3. febrúar 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. mars 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
---|---|---|---|
Áætlaður verktakakostnaður | 179.505.000 | 100,0 | 34.430.199 |
Jón Ingi Hinriksson ehf., Bergholti | 162.444.000 | 90,5 | 17.369.199 |
Vinnuvélar Reynis B Ingvasonar ehf., Húsavík | 145.074.801 | 80,8 | 0 |