Hjólfarafyllingar á Suðursvæði 2025
Vegagerðin býður hér með út hjólfarafyllingar á Suðursvæði árið 2025.
Verki skal að fullu lokið 15. júlí ár hvert. Gildistími samnings er eitt ár. Heimild er til framlengingar samnings um eitt ár með samþykki beggja aðila.
| Hjólfarafylling með flotbiki | 91.000 m2 | 
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 3. mars 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 18. mars 2025.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
| Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. | 
|---|---|---|---|
| Arnardalur sf. | 176.698.000 | 102,3 | 0 | 
| Áætlaður verktakakostnaður | 172.750.000 | 100,0 | 3.948.000 |