Vegagerðin býður hér með út efnisvinnslu í farvegi Skeiðarár og Kolgrímu á Austursvæði 2026, alls 9.000 m3.
Vinna skal steinefni í klæðingu úr námunum og skal verkinu að fullu lokið eigi síðar en 10. júlí 2026.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 20. apríl 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 5. maí 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
| Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
|---|---|---|---|
Fossvélar ehf., Selfossi | 97.590.000 | 169,7 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 57.520.000 | 100,0 | 40.070.000 |