Útboðsnúmer 26-080
Aggrega­tes for East Iceland 2026 (Fljó­dals­hérað Regi­on)

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst apríl 2026
    • 2Opnun tilboða
    • 3Samningum lokið

15. apríl 2026Útboðsauglýsing

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í öflun og/eða framleiðslu á steinefni fyrir Austursvæði (Fljótdalshérað).

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í eitt ár frá töku tilboðs.

Um er að ræða útboð sem tekur til öflunar steinefnis og skal efnið afgreitt haugsett innan svæðis sem fram kemur í lið 1.5.10  í útboðsgögnum fyrir 15. júlí 2026 (Hróarstunga) og 01. september 2026 (Jökulsárhlíð). Seljandi skal útvega afhendingarstaði. Seljandi skal slétta og þjappa botn fyrir haugsetningu efnisins og fá botninn úttekinn og samþykktan af fulltrúa verkkaupa.

Efnisflokkar og áætlað magn -15% og + 30%:

Efnisflokkur Magn m3
Malarslitlag 0/16 mm Jökulsárhlíð 3.000
Malarslitlag 0/16 Hróarstunga 3.000
Samtals 6.000

 

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með Miðvikudeginum 15. apríl 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. maí 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.