Vegagerðin áformar að endurbyggja Laxárdalsveg (59) á um 10,5 km kafla frá Hólkotsá að Sýslumörkum. Vegurinn verður að mestu endurbyggður í núverandi vegsvæði. Verkefnið er seinni áfangi endurbótaframkvæmda á austanverðum Laxárdalsvegi.
Meginmarkmið framkvæmdarinnar er að bæta umferðaröryggi. Það er meðal annars gert með sterkeri og breiðari vegi með bundnu slitlagi, bættum sjónlengdum og öruggari hliðarsvæðum. Með endurbættum vegi verða kröfur um umferðaröryggi og greiðfærni vegar uppfylltar.
Núverandi vegsvæði Laxárdalsvegar er 6 m breitt til beggja handa frá miðlínu vegar, eða samtals 12 m breitt. Endurbygging vegarins verður alfarið í vegstæði núverandi vegar. Vegurinn verður 6,5 m breiður með 6,3 m breiðu bundnu slitlagi. Nýtt vegsvæði endurbyggðs vegar verður 15 m breitt til beggja handa frá miðlínu vegar, eða samtals 30 m breitt. Veglína vegarins mun fylgja núverandi veglínu. Planlega vegarins verður því óbreytt þó svo hæðarlega breytist að einhverju leyti og blindhæðir teknar af. Hönnunarhraði verður 90 km/klst.
Á vegkaflanum eru þrjár einbreiðar brýr yfir Hólkotsá, Laxá í Dölum og Laxá í Hrútafirði. Brýrnar yfir Laxá í Dölum og Laxá í Hrútafirði munu standa áfram óbreyttar. Brúin yfir Hólkotsá verður rifin og í hennar stað byggt hálfbogaræsi yfir ána. Á núverandi vegi eru 2 vegtengingar, að Svalhöfða og Sólheimum, og verða þær aðlagaðar að endurbættum vegi. Þá eru nokkrar útafkeyrslur á vegslóða, margar hverjar tengdar laxveiði, sem einnig verða aðlagaðar að endurbættum vegi.
Hönnunarforsendur miða við að árdagsumferð (ÁDU) fari úr 140-160 bílum árið 2019 í 334-395 bíla árið 2039. Skiltaður hámarkshraði verður 90 km/klst.
Laxárdalsheiði er tilnefnd á B-hluta náttúruminjaskrár vegna fuglalífs og er svæðið talið alþjóðlega mikilvægt sem varpsvæði álftar og himbrima. Vegur yfir Laxárdalsheiði liggur um framangreint svæði á um 10 km kafla. Fyrirhugaðar endurbætur á veginum munu ekki hafa áhrif á verndarsvæðið þar sem þær munu hvorki skerða búsvæði né farleiðir fuglanna.

Mynd sýnir fyrirhugað framkvæmdasvæði á Laxárdalsvegi