Hring­torg við Akra­nesveg

  • TegundVegir
  • StaðaFrumdrög, for - og verkhönnun
  • Markmið
      Greiðar samgöngurJákvæð byggðaþróunÖruggar samgöngurUmhverfislega sjálfbærar samgöngur
  • Heimsmarkmið
      9. Nýsköpun og uppbygging
  • Flokkar
      SamgöngukerfiðGöngu- og hjólastígarEndurbæturÖryggisaðgerðir
  • Svæði
    • Vesturland

Vegagerðin í samvinnu við Akraneskaupstað áforma að setja hringtorg á gatnamót Akrafjallsvegar og Akranesvegar. Marmkið framkvæmdarinnar er að staðla að auknu umferðaröryggi og tryggja greiðfærni við vegamót Akrafjallsvegar og Akranesvegar, en núverandi T-vegamót teljast ófullnægjandi.

Í tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2024-2038 er nýr liður sem kallast stærri öryggisaðgerðir utan höfuðborgarsvæðis. Tilheyrandi fjárveiting er ætlað til þess að framkvæma stærri öryggisaðgerðir utan höfuðborgarsvæðis, eins og gerð vegamóta, gerð göngu- og hjólabrúa og gerð undirganga.

Gerð göngu- og hjólastíga er samvinnuverkefni Vegagerðarinnar og Akraneskaupstaðar og skiptist heildarkostnaður vegna bæði hönnunar og framkvæmdar jafnt á báða aðila. Vegagerðin styrkir gerð þeirra úr göngu- og hjólastígasjóð. Fyrir hringtorg sjálft er gert ráð fyrir kostnaðarskiptingu 25% Akranes og 75% Vegagerðin. Undirgöngin eru kostuð af Vegagerðinni.

Framkvæmdin mun m.a. leiða til betri tenginga milli íbúðabyggðar og iðnaðarsvæðis norðan við Akrafjallsveg, ekki síst fyrir umferð hjólandi og fótgangandi. Einnig mun tilkoma hringtorgs á vegamótin stöðla að jákvæðri og öruggri byggðaþróun til framtíðar.


Teikning sýnir hvernig umferð fótgangandi verður við tilkomu hringtorgs

Teikning sýnir hvernig umferð fótgangandi verður við tilkomu hringtorgs