Brýr á Djúpafjörð við Grónes og Gufufjörð er eitt af nokkrum verkefnum sem tengjast betrumbótum á Vestfjarðarvegi um Gufudalssveit.
Vegagerðin stendur fyrir gerð tveggja steyptra brúa á ofangreindu svæði: annars vegar 58m langa brú á Djúpafjörð við Grónes og hins vegar um 130 m langa brú á Gufufjörð. Einnig innifalið í verkinu er rif á núverandi 119 m bráðabirgðabrú á Gufufirði ásamt efnisflutningum úr núverandi vinnuplönum og gerð grjótvarnar eða rofvarnar.
Áætluð verklok eru 30. september 2026. Verkið er næstsíðasti liður í Gufudalsframkvæmdum og að verki kláruðu mun aðeins gerð netbogabrúar yfir Gufufjörð standa eftir. Samið var við norska verktakann Leonhard Nilsen & Sønner as um framkvæmd verkefnis, en tilboð þeirra hljóðaði á um 114% af áætluðum verktakakostnaði.
Vestfjarðavegur (60) um Gufudalssveit, brýr á Djúpafjörð við Grónes og Gufufjörð
Vestfjarðavegur (60) um Gufudalssveit, brýr á Djúpafjörð við Grónes og Gufufjörð, eftirlit og ráðgjöf