Verkið felst í forhönnun á breikkun Hringvegar (1) frá Kambarótum, 1,3 km vestan við vegamót Þorlákshafnaregar, að vegamótum Hringvegar og Biskupstungnabrautar. Fyrirhugað er að ráðast í verkið á milli 2027-2028.
Verkefnið er áfangi í tvöföldun Suðurlandsvegar sem snýst um breikkun á um 13,6 km kafla milli Hveragerðis og Selfoss. Áformað er að leggja 2+2 veg með aðskildum akstursstefnum og nýjum vegtengingum til þess að auka umferðaröryggi. Hringvegur verður enn fremur færður norður fyrir Selfoss til þess að létta á umferðarþunga innan bæjarkjarnans.
Forsendur fyrir verkinu eru þær að Suðulandsvegur er einn fjölfarnasti þjóðvegur landsins, og er kaflinn milli Hveragerðis og Selfoss umferðarmesti kafli vegsins, enda margir sem sækja þjónustu, vinnu eða nám sveitarfélaganna á milli. Framkvæmdin og markmið hennar eru í samræmi við gildandi samgönguáætlun um aukið umferðaröryggi og greiðfærni.
Kaflinn Varmá – Kambar er þriðji og síðasti áfangi verkefnisins. Matsskýrsla fyrir verkefnið í heild sinni var unnin 2010 og er hún aðgengileg að neðan.

Myndin sýnir svæði verkefnis í heild sinni.