Fljóts­heiði í Þing­eyjar­sveit

  • TegundEfnistaka úr námu
  • StaðaFramkvæmd lokið
  • Verktími2015–2025
  • Markmið
      Umhverfislega sjálfbærar samgöngur
  • Heimsmarkmið
      11. Sjálfbærar borgir og samfélög
  • Flokkar
      VegirEndurbæturBundið slitlag
  • Svæði
    • Norðurland

Vegagerðin stóð fyrir efnistöku úr opinni námu á Fljótsheiði þar sem tekið var um 149.900 m3 af efni á ca. 49.900 m2 svæði. Náman var lögð fram í samráði við Þingeyjarsveit því gera þurfti óverulega breytingu á Aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2010-2022 vegna hennar.

Markmið efnistökunnar var að útvega og vinna efni til að endurbyggja og styrkja vegkafla í nágrenninu. Efnið var notað við vegaframkvæmdir sem auka öryggi vegfarenda sem leið eiga um Bárðardalsveg vestri og Hringveginn við Skjálfandafljót og í Reykjadal. Við efnistöku á þessu svæði var nýtt efni úr svæði sem áður hafði verið raskað með efnistöku, sem og voru flutningsvegalengdir á fyllingarefni og burðarlagi úr námu hafðar sem stystar, þar með dregið úr útblæstri, rykmengun, kostnaði og slysahættu.

Framkvæmdin var tilkynnt til Skipulagsstofnunar í samræmi við  6. gr. laga nr.106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum. Meðfylgjandi er greinargerð með nánari upplýsingum um framkvæmdina og um ástæður fyrirhugaðrar efnistöku.