Njarð­víkur­skriður

  • TegundVegir
  • StaðaFramkvæmd lokið
  • Verktími2018–2019
  • Markmið
      Öruggar samgöngur
  • Heimsmarkmið
      11. Sjálfbærar borgir og samfélög9. Nýsköpun og uppbygging
  • Flokkar
      EndurbæturBundið slitlagVerktaki - Héraðsverk

Vegagerðin réðst í endurbætur á Borgarfjarðarvegi (94) í Njarðvík og Njarðvíkurskriðum á um 4,8 km löngum kafla í Borgarfjarðarhreppi. -Framkvæmdin hafðist seinnipart ársins 2018 og var að fullu lokið fyrir 1. september 2019. Verktaki sem kom að framkvæmdinni var Héraðsverk en áttu þeir lægra tilboðið af tveimur í útbsoðsferli.

 

Framkvæmdin fólst í lagfæringu á núverandi vegi til að auka umferðaröryggi og lagningu bundins slitlags. Efnisþörf í verkið var í grend við um 112.000 m3. Teknir voru 20.000 m3 úr námum en annað efni var fengið úr skeringum meðfram vegi. Námusvæðin eru á aðalskipulagi Borgarfjarðarhrepps 2004-2016, náma B4 Njarðvíkurá og náma B3 Innri-Hvannagilsá.

Framkvæmdin var talin geta mögulega raskað fornleifum og féll því undir 6. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 m.s.br., flokk B í 1. viðauka, lið 10.09, því um var að ræða enduruppbyggingu vegar utan þéttbýlis á verndarsvæði.

Forsendur framkvæmdar voru þær að hún var í samræmi við markmið samgönguáætlunar um að auka umferðaröryggi. Framkvæmdinni var einnig komið í gang því talið var að hún skildi hafa óveruleg áhrif á landnotkun, vatn, landslag, gróðurfar, fugla og fiska en jákvæð áhrif á mannlíf, samgöngur, umferðaröryggi og mengun. Í kynningarskýrslu er fjallað um framkvæmdina og möguleg áhrif hennar á umhverfið.