Um Kjalar­nes

  • TegundVegir
  • StaðaFramkvæmd hafin
  • Verktími2020–2027
  • Markmið
      Greiðar samgöngurÖruggar samgöngur
  • Heimsmarkmið
      9. Nýsköpun og uppbygging
  • Flokkar
      Göngu- og hjólastígarEndurbæturAðskilnaður akstursstefnuÖryggisaðgerðirVerktaki - Ístak
  • Svæði
    • Höfuðborgarsvæðið

Vegagerðin, í samráði við Reykjavíkurborg, stendur fyrir breikkun Vesturlandsvegar á um 9 km kafla milli Varmhóla og Hvalfjarðarvegar. Um er að ræða breikkun Vesturlandsvegar í 2+1 veg ásamt gerð þriggja hringtorga, þ.e. við Móa, Grundarhverfi og Hvalfjarðarveg. Samhliða breikkuninni er vegtengingum fækkað og í staðinn gerðir hliðarvegir ásamt reiðstígum og stígum fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Markmið framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur og auka umferðaröryggi vegfarenda.

 

 

Vesturlandsvegur um Kjalarnes fyrir yfirstandandi framkvæmdir var að öllu leiti 1+1 vegur án aðskilnaðar milli akstursstefna, með tæplega 30 vegamót, tengingar og þveranir innan vegkaflans. Vegurinn er einn umferðarmesti vegur landsins og geta þess vegna skapast talsverðar hættuaðstæður. Aðskilnaður akstursstefna, fjölgun akreina í sömu átt, fækkun vegtenginga og bygging hringtorga eru allt aðgerðir sem draga úr líkum á umferðarslysum og stöðla að auknu umferðaröryggi í samræmi við stefnu Vegagerðarinnar.

Tengd útboð


Myndband um framkvæmdina

Í meðfylgjandi myndbandi sem unnið var af Verkís fyrir Vegagerðina má sjá hvernig framkvæmdir verða við fyrsta áfanga milli Varmhóla og Vallár.


Skýrslur tengdar verkefninu

Fréttir tengdar verkefninu