Vegagerðin býður hér með út breikkun Hringvegar frá Vallá að Hvalfjarðarvegi. Á kaflanum verða tvö hringtorg, tvö ný undirgöng við annars vegar við Grundarhverfi, og hins vegar við Arnarhamar sem og framlenging núverandi undirganga við Klébergsskóla, auk hliðarvega og stíga. Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar, Veitna, Ljósleiðarans og Mílu.
Um er að ræða breikkun á 5,6 km löngum kafla Hringvegar frá Vallá að Hvalfjarðarvegi. Breikka á núverandi 2 akreina veg í 2+1 og 2+2 veg með aðskildum akbrautum. Í verkinu eru hringtorg, staðsteypt undirgöng, stálplötuundirgöng og framlenging núverandi undirganga við Klébergsskóla, áningarstaður og hliðarvegir. Þörf er á einhverjum fergingum þrátt fyrir að farið hafi verið af stað með töluvert af þeim í framkvæmdum við 1. áfanga breikkunar. Verkinu tilheyra ræsi, regnvatnslagnir, veglýsing, lagnir fyrir upplýsingakerfi Vegagerðarinnar og breytingar á lögnum veitufyrirtækja.
Helstu magntölur eru:
Fylling/ferging
– Fyllingar/fergingar 104.000 m3
– Skeringar, efni flutt á losunarstað 42.000 m3
– Sigplötur 63 stk.
– Nýir skurðir 5.900 m3
– Fyllt í núverandi skurði 3.000 m3
– Jarðvegsdúkur 57.000 m2
– Grjótræsi nýtt 460 m3
– Grjótræsi fyllt í núv. skurð 2.400 m3
Hringvegur, vegagerð
– Skeringar, efni flutt á losunarstað 45.000 m3
– Fyllingar (fláafleygar innifaldir) 33.000 m3
– Stálræsi 240 m
– Ofanvatnsræsi 710 m
– Styrktarlag 75.000 m3
– Burðarlag 15.000 m3
– Kaldblandað malbik, 5 cm 62.000 m2
– Malbik, tvö lög, 11 cm 65.000 m2
– Gróffræsun 15.000 m2
– Víravegrið 8.000 m
– Ídráttarrör fyrir upplýsingakerfi 12.000 m
– Uppsetning og tenging veglýsingar 48 stk
Hliðarvegir, vega- og stígagerð
– Skeringar, efni flutt á losunarstað 38.000 m3
– Fyllingar 35.500 m3
– Stálræsi 470 m
– Styrktarlag 30.500 m3
– Burðarlag, óbundið 10.100 m3
– Malarslitag 13.500 m2
– Gangstígar með stífmalbiki 23.700 m2
– Tvöföld klæðing 33.500 m2
– Hljóðveggur 550 m
– Reiðstígar 6.300 m2
– Uppsetning og tenging stígalýsingar 107 stk
Framlenging undirganga við Vallá
– Stálplöturæsi 32 m
– Bergskeringar 250 m3
– Gröftur 1000 m3
– Fylling við stálröragöng 1350 m3
Undirgöng við Esjuskála og stoðveggir
– Steypt undirgöng 24 m
– Stoðveggir 72 m
– Bergskeringar 50 m3
– Gröftur 1.720 m3
– Fylling við undirgöng og stoðvegg 2.430 m3
Undirgöng við Arnarhamar
– Stálplöturæsi 39 m
– Bergskeringar 950 m3
– Gröftur 3.930 m3
– Fylling við stálröragöng 1.200 m3
Lenging stokks yfir Blikdalsá
– Steypa 87 m3
– Slakbent járnabending 9,7 tonn
– Gröftur 1.060 m3
– Rofvarnir 520 m3
Ræsi fyrir Blikdalsá gegnum Bakkaveg
– Stálplöturæsi 28 m
– Bergskeringar 70 m3
– Gröftur 200 m3
– Fylling við stálröragöng 400 m3
– Rofvarnir 470 m3
Eftirlitsstaður
– Eftirlitshús 1 HT
– Færsla á vog 1 HT
– Uppsetning og tenging svæðislýsingar 10 stk.
– Safnþró 1 stk.
– Rafkerfi 1 HT
Upplýsingakerfi Vegagerðarinnar
– Gröftur fyrir leiðslum og jarðstrengjum 900 m
– Jarðstrengir 1.800 m
– Blástursrör 5.400 m
– Uppsetning gittermastra og undirstaða 17 stk.
– Uppsetning lokunarhliða 4 stk.
Veitufyrirtæki, jarðvinna fyrir sameiginlega skurði
– Gröftur 10.000 m3
– Fylling (þ.m.t. söndun og burðarlög) 3.000 m3
– Plæging háspennustrengja 3.700 m
– Plæging lágspennustrengja 310 m
– Línuborun 160 m
Veitur, kaldavatnslagnir
– Vatnslagnir 1.900 m
Veitur, hitaveita
– Einangruð stálrör 570 m
– Einangruð PEX rör 30 m
Veitur, raflagnir
– Ídráttarrör 520 m
– Jarðstrengir og jarðvír 630 m
Ljósleiðarinn, fjarskiptalagnir
– Rör og ídráttarrör 1.020 m
– Meðhöndlun núverandi lagna 210 m
– Brunnar, nýir og færðir 4 stk
Míla, fjarskiptalagnir
– Brunnar 1 stk
– Ídráttar- og fjölpípurör 230 m
Verkinu skal að fullu lokið 30. september 2029.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 8. september 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.