Vegagerðin, í samstarfi við Akraneskaupstað og veitufyrirtæki stóð fyrir endurgerð á um 800 m kafla á Akranesvegi (509) á Faxabraut. Framkvæmdin fól í sér endurbyggingu á eldri vegi, gerð grjótvarnar meðfram Faxabraut ásamt lagningu raflstrengja, hitaveitulagnar, kaldavatnslagnar og ljósleiðara.
Framkvæmdin var boðin út 2020 og voru verklok 2022.
Markmiðið með framkvæmdinni var að hækka veginn og setja nýja stærri grjótvörn sem kemur í veg fyrir að sjór gangi yfir veginn. Í hönnun nýs vegar var tekið inn í reikninginn hækkun sjávar á næstu árum. Í framkvæmdinni var einnig hugað vel að umferðaröryggi gangandi vegfarenda svo að þeir geti ferðast öruggari um nýja Faxabraut.
Hönnun verksins var í samræmi við veghönnunarreglur Vegagerðarinnar og er framkvæmdin liður í að auka umferðaröryggi. Nýr vegur er af vegtegund C7, með heildarbreiddina 7,5 m.

Frá Faxabraut á framkvæmdatíma.