Endur­bætur á Þing­valla­vegi

  • TegundVegir
  • StaðaFramkvæmd lokið
  • Verktími2018–2019
  • Markmið
      Öruggar samgöngurGreiðar samgöngur
  • Heimsmarkmið
      9. Nýsköpun og uppbygging
  • Flokkar
      VegirEndurbæturVerktaki - Þjótandi

Ráðist var í endurbætur á Þingvallavegi (36-04) á um 9 km löngum vegkafla á milli Þjónustumiðstöðvar Þingvalla og syðri vegamóta Þingvallavegar við Vallarveg (361). Framkvæmdirnar voru liður í nauðsynlegu viðhaldi vegarins og hafa það markmið að auka umferðaröryggi vegarins, en umferð á veginum hefur aukist verulega á undanförnum árum. Árið 2010 var umferð um 430 bílar á sólarhring en á árið 2016 var umferðin 1.500 bílar á sólarhring. Gert er ráð fyrir að um árið 2040 verði umferðin allt að 4.000 bílar á sólarhring

 

Talið var mikilvægt að ráðast sem fyrst í endurbætur á Þingvallavegi þar sem ástand vegarins var orðið töluvert slæmt sem og tegund og breidd vegar var ekki í samræmi við umferðarþunga sem eldri vegur þjónaði. Dæmi voru um að þegar rútur mættust á vegi átti vegöxl til í að gefa sig undan þunga rútunnar með tilheyrandi afleiðingum að rútan fór af vegi og átti í hættu á að fara á hlið. Ákveðið var að skildi breikka veginn úr 6,5 m yfir í 8 m til þess að rútur hefðu færi á því að mætast án þess að þyrfti að fara út í vegöxl.

Á undirbúningsstigi framkvæmdar voru þrír kostir skoðaðir. Kostur A varð fyrir valinu en einnig til athugunar voru kostir B og C. Í kosti B var skoðað að breikka veginn í 9,0 m til þess að sinna þeirri umferð sem um hann fer og er í samræmi við hönnunarreglur Vegagerðarinnar. Kostur C skoðaði það að halda vegi í 6,5 m breidd, en uppfyllti sá kostur ekki markmið stofnunarinnar um aukið umferðaröryggi eða þær kröfur sem gerðar eru til vega með umferð sem gildir 1.500 bílum á sólarhring eða meira.

Framkvæmdin átti sér stað innan svæðis sem er bundið ýmsum verndarákvæðum. Vegurinn liggur í Þjóðgarðinum á Þingvöllum, sem er á Heimsminjaskrá UNESCO. Þingvellir og Þingvallavatn eru á Náttúruminjaskrá (nr. 743). Framkvæmdasvæðið var innan vatnasviðs Þingvallavatns sem er verndað með lögum nr. 85/2005. Framkvæmdin var jafnframt innan svæðis sem nýtur hverfisverndar í Aðalskipulagi Bláskógabyggðar, Þingvallasveit 2008 – 2016. Þingvallavegur liggur á eldhrauni og fer í gegnum birkiskóg sem njóta sérstakrar verndar skv. 61. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd. Sérstök aðgætni var sýnd í framfærslu þessarar framkvæmdar sökum einstakrar nátturu og lögverndar.

 


Verkið var í höndum verktakans Þjótandi ehf.

Verkið var í höndum verktakans Þjótandi ehf.

Tölvugerð mynd af framkvæmd

Tölvugerð mynd af framkvæmd