Borgarlínan, lota 6, nær frá Svarthöfða á Ártúnshöfða, fer í gegnum Keldnaland, nýtt byggingarland Blikastaða og þaðan upp í Háholt í Mosfellsbæ, á um 8,5 km kafla. Nánari upplýsingar má finna á Borgarlínan.is og Verksjá.is.
Nánari upplýsingar um Borgarlínuna má finna á vef verkefnisins, borgarlinan.is.
Verkefnið er hluti af Samgöngusáttmálanum, sem ríkið og sex sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu (Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes) hafa undirritað.
Samgöngusáttmálinn felur í sér sameiginlega framtíðarsýn og heildarhugsun fyrir skipulagssvæðið. Markmiðið er að auka öryggi, bæta samgöngur fyrir alla ferðamáta og minnka tafir, stórefla almenningssamgöngur og draga úr mengun af völdum svifryks og losun gróðurhúsalofttegunda til að standa við loftslagsmarkmið stjórnvalda og sveitarfélaga.

Borgarlínan, lota 6.