Almyrkvi á sólu

  • Hvar?Reykjanes, Höfuðborgarsvæðið, Vesturland og Vestfirðir
  • Hvenær?12. ágúst 2026

Vegna almyrkvans sem verður sýnilegur á Íslandi 12. ágúst 2026 er búist við verulegri aukningu í umferð á ákveðnum svæðum landsins. Til að tryggja öryggi vegfarenda og greiða fyrir umferð verður gripið til tímabundinnar umferðarstýringar á nokkrum vegum Vegagerðarinnar.

Umferðarstýringin hefst klukkan 12:00 þann 12. ágúst 2026 og stendur fram yfir atburðinn, eftir því sem þörf krefur.

Smellið hér fyrir upplýsingar um vegalokanir og umferðarstýringu

Skráning á viðburðinn