Rann­sókna­ráðstefna Vega­gerðar­innar 2025

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2025 var haldin í 24. sinn föstudaginn 7. nóvember á Hilton Reykjavík Nordica. Rúmlega þrjú hundruð manns sóttu ráðstefnuna heim en dagskráin var fjölbreytt að vanda og endurspeglaði það hið margháttaða rannsókna- og þróunarstarf sem styrkt er af rannsóknasjóði Vegagerðarinnar.

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2025

Ráðstefnan hefur alla jafna verið fjölsótt af starfsfólki Vegagerðarinnar, starfsfólki ráðgjafa- og verkfræðistofa, verktaka og almenns áhugafólks um samgöngur og rannsóknir.

Á ráðstefnunni í ár var mest fjallað um rannsóknir sem fengu fjárveitingar úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar árið 2024.

Styrkur rannsóknasjóðs Vegagerðarinnar liggur í því að styrkja verkefni á mjög breiðu fræðasviði þar sem ekki er endilega einblínt á hefðbundna vegagerð. Verkefnin falla þó undir fjóra almenna flokka sem eru: mannvirki, umferð, umhverfi og samfélag.

Ráðstefnustjóri í ár var Hólmfríður Bjarnadóttir, forstöðukona umhverfis- og sjálfbærnideildar Vegagerðarinnar.

Myndband

Ágrip og glærur

Fyrirlestrar – ágrip og glærur

 

Glærur 

Glærur

Glærur

Glærur

Glærur

Glærur

Glærur

Glærur

Glærur

Glærur

Glærur

Glærur

Glærur

Glærur

Glærur

Veggspjöld

Myndagallerí