1. október 2026
Vetrar­sigl­ingar milli Mjóa­fjarðar og Neskaups­staðar tryggðar

Vegagerðin hefur framlengt samning við Björgvin ehf. um siglingar með farþega, frakt og póst milli Mjóafjarðar og Neskaupsstaðar. Markmiðið er að standa að reglubundnum áætlunarferðum yfir vetrartímann þegar hætt er við að vegurinn til Mjóafjarðar lokist vegna snjóa.

 

Björgvin SU41 siglir milli Mjóafjarðar og Neskaupsstaðar.

Björgvin SU41 siglir milli Mjóafjarðar og Neskaupsstaðar.

Samningurinn tekur gildi frá og með 1. október og gildir til 30. september 2027. Um er að ræða framlengingu á samningi frá 2023.

Samkvæmt samningnum á að sigla tvær ferðir á viku á tímabilinu 1. október til og með 31. maí. Siglingin tekur um eina klukkustund og er siglt með bátnum Björgvini SU41.

Ferðaáætlun skal vera sem hér segir:

 

                                  Frá Mjóafirði                     Frá Neskaupstað

Mánudagar:          kl. 10:00                                  kl. 12:30

Fimmtudagar:       kl. 10:00                                  kl. 12:30

Til að bóka ferð með ferjunni eða fá nánari upplýsingar er hægt að hafa samband símleiðis í númerin 849 4797 eða 849 4790.