30. september 2026
Umhverf­ismat vegna Reykja­nesbrautar til kynn­ingar á opnu húsi

Vegagerðin stendur fyrir opnu húsi mánudaginn 5. október kl. 16:30-18.30 í Myllubakkaskóla í Keflavík. Umhverfismat vegna tvöföldunar Reykjanesbrautar á 4,7 km kafla milli Hafnavegar og Garðskagavegar verður til kynningar.

Fulltrúar Vegagerðarinnar og ráðgjafateymi verða á staðnum til að svara spurningum og veita nánari upplýsingar um umhverfismatið, framkvæmdina og áhrif hennar á nærumhverfið. Öllum er velkomið að mæta á opna húsið.

Reykjanesbraut til suðurs.

Reykjanesbraut til suðurs.

Umhverfismatsskýrslan er nú í kynningarferli í Skipulagsgátt og er opið fyrir umsagnir og athugasemdir til 13. október.

Sjá nánar á vef Skipulagsgáttar: Umhverfismat. Reykjanesbraut: Hafnavegur-Garðskagavegur.

Um verkefnið:

Fyrirhugaður framkvæmdakafli hefst við Fitjar þar sem nú er hringtorg sem tengir Reykjanesbraut við Hafnaveg (44) og Víknaveg/Stekk í Njarðvík. Hann endar við Rósaselstorg þar sem nú er hringtorg þar sem Reykjanesbraut, Sandgerðisvegur (429) og Garðskagavegur (45) koma saman.

Um er að ræða 4,7 km langan kafla Reykjanesbrautar í bæjarfélögunum Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ.

Vegagerðin hyggst tvöfalda veginn þannig að vegurinn verði fjögurra akreina vegur, með tveimur akreinum í hvora átt og aðskilnaði akstursstefna með vegriði. Fyrirhugað er að nýta núverandi Reykjanesbraut (41) eins og hægt er fyrir umferð frá austri til vesturs en byggja nýjan tveggja akreina veg við hlið hennar, að sunnanverðu, fyrir umferð frá vestri til austurs.

 Markmið framkvæmdarinnar er að:

  • Auka umferðaröryggi vegfarenda og íbúa svæðisins.
  • Tryggja greiðari samgöngur.
  • Bæta sambúð vegar og umferðar við íbúa og umhverfi.
  • Lágmarka líkur á lokun stofnbrautar vegna veðurs.
  • Tryggja að hægt verði að byggja upp almenningssamgöngukerfi samhliða stofnbraut sem þjónar byggðarlögum nærumhverfis ásamt almenningssamgöngum milli flugvallar og höfuðborgarsvæðis.
  • Reykjanesbraut uppfylli þær kröfur sem viðkomandi sveitafélög gera til hennar í takt við þróunar- og skipulagsáætlanir.

Í umhverfismatsskýrslunni eru eftirfarandi umhverfisþættir til skoðunar: Gróðurfar, fuglalíf, menningarminjar, jarðmyndanir, vatnshlot, landslag; útivist og ásýnd lands, loftgæði og hljóðvist.

Einnig má finna upplýsingar um verkefnið á vef Vegagerðarinnar.