Vegna almyrkvans þann 12. ágúst nk. má búast við mikilli umferð víða á vestanverðu landinu, sérstaklega á þeim stöðum þar sem myrkvinn stendur hvað lengst yfir. Til að tryggja öryggi vegfarenda og greiða fyrir umferð verður tímabundin umferðarstýring á nokkrum vegum.

Nú styttist í sólmyrkvann.
Umferðarstýring hefst almennt klukkan 8:00 að morgni 12. ágúst eða aðeins síðar og stendur fram yfir sólmyrkvann eftir því sem þörf krefur. Á flestum vegum verður um einstefnu að ræða sem mun snúast við eftir almyrkvann en á öðrum verða tímabundnar lokanir eða breytingar á akstursleiðum.
Einnig gæti komið til frekari umferðarstýringar eða lokana eftir því hvernig umferðin þróast þann 12. ágúst. Ef miklar umferðartafir verða við Hvalfjarðargöng gæti þurft að loka þeim og beina umferð um Hvalfjörð.
Fólk er hvatt til að skipuleggja ferðir sínar vel, leggja tímanlega af stað, kynna sér fyrirkomulag umferðarstýringar mjög vel áður en haldið er af stað og gera ráð fyrir töluvert lengri ferðatíma en vanalega.
Nánari upplýsingar um umferðarstýringu og kort af þeim svæðum sem breytingarnar ná til eru hér: Almyrkvi á sólu
Á ensku má finna upplýsingar hér: Total Solar Eclipse 2026
Einnig verða upplýsingar uppfærðar reglulega á Umferðin.is
Vestfirðir
Vesturland
Reykjanes
Nokkur sveitarfélög hafa ákveðið að loka eða breyta tímabundið sumum akstursleiðum, svo sem nokkrum götum á höfuðborgarsvæðinu og veginum upp á Bolafjall.