Á næstu dögum verður ráðist í framkvæmdir við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar með það að markmiði að bæta umferðaröryggi, sýnileika og aðgengi fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Áætlað er að verkinu ljúki um mánaðamótin september-október.

Hér eru umrædd gatnamót.
Nánar um framkvæmdina:
Framkvæmdum verður skipt í fjóra áfanga og loka þarf einu framhjáhlaupi í einu meðan á vinnu stendur. Því má búast við tímabundnum breytingum á umferðarskipulagi á svæðinu.
Ökumönnum er bent á að fylgjast vel með merkingum á svæðinu og virða tímabundnar umferðarráðstafanir Sérstaklega verður hugað að öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda og verða göngu- og hjólaleiðir merktar sérstaklega meðan á framkvæmdum stendur.
Markmið framkvæmdarinnar er að bæta umferðaröryggi, sýnileika og aðgengi gangandi og hjólandi vegfarenda við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar.
Sambærilegar öryggisaðgerðir voru gerðar við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar árið 2024.
Um er að ræða samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborgar, en það heyrir undir samgöngusáttmálann.

Settar verða nýjar, upphækkaðar gönguþveranir á fjórum stöðum við gatnamótin.

Hér sést hvar verður framkvæmt.

Norðaustur horn gatnamótanna og miðeyja.

Norðvestur horn gatnamótanna.

Suðvestur horn gatnamótanna og miðeyja.

Suðaustur horn gatnamótanna.