30. september 2026
Umbætur á aðkomu og aðstöðu fyrir almenn­ings­vagna á Kefla­víkur­flug­velli

Mikilvægar umbætur hafa verið gerðar á aðkomu og aðstöðu fyrir almenningsvagna sem aka til og frá Keflavíkurflugvelli til að bæta aðgengi flugfarþega og starfsfólks að flugstöðinni. Nýjar stoppistöðvar hafa verið settar upp á tveimur stöðum, merkingar bættar og gönguleiðin að almenningsvögnum fyrir farþega sem eru að koma úr flugi er nú yfirbyggð. Eftir breytingar verða þrjár stoppistöðvar við flugstöðina en í dag er ein stoppistöð fyrir almenningsvagna. 

Kort af flugstöðvarsvæðinu. 
MYND/ISAVIA

Kort af flugstöðvarsvæðinu. MYND/ISAVIA

Breytingarnar taka til leiðar 55 sem ekur milli BSÍ og/eða Fjarðar til Keflavíkurflugvallar og leiðar 89 sem ekur milli Reykjanesbæjar/Suðurnesjabæjar og Keflavíkurflugvallar. Nýtt fyrirkomulag tekur gildi á morgun, fimmtudaginn 1. október nk. 

Verkefnið hefur verið unnið í náinni samvinnu Vegagerðarinnar, sem sér um rekstur landsbyggðarstrætó, Isavia og ASHB (Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf.). Breytingarnar eru í takt við tillögur starfshóps sem skipaður var um almenningssamgöngur milli höfuðborgarsvæðis og Keflavíkurflugvallar. 

„Þetta er mikilvægur áfangi við að bæta almenningssamgöngur til Keflavíkurflugvallar. Við viljum að farþegar og starfsfólki eigi auðveldara með að velja sér ferðamáta til og frá flugvellinum. Nýjar stoppistöðvar og yfirbyggðir göngustígar gera þar gæfumuninn. Næstu skref okkar verða að skapa forsendur til auka tíðni og bæta þjónustu almenningsvagna á þessari leið,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra. 

Leið 55 – helstu breytingar 

  • Ný stoppistöð fyrir brottfararfarþega (KEF Brottfarir).
    Ný stoppistöð tekin í notkun brottfararmegin við flugstöðina fyrir farþega á leið í flug. Leið 55 ekur alla leið inn að flugstöðinni og hleypir út farþegum á sama stað og flugrútur. Ekki verður hægt að stíga um borð í almenningsvagna á þessari stöð. 
  • Ný stoppistöð fyrir komufarþega (KEF Komur). Ný stöð tekin í notkun komumegin á sérmerktu stæði. Byggt hefur verið yfir gönguleiðina frá flugstöðinni til að skýla farþegum sem eru að koma úr flugi fyrir veðri og vindum. 
  • Bættar merkingar. Allar merkingar inni í flugstöðinni og utan dyra á stoppistöðvum og gönguleiðum hafa verið bættar og endurgerðar. 
  • Auðveldara að flytja hjól. Hægt er að taka með reiðhjól um borð á nokkrum algengum brottfarartímum hjá leið 55 (fimm brottfarartímar af tólf). 
  • Endastöð. Á virkum dögum keyrir leið 55 ýmist alla leið til Reykjavíkur (BSÍ) eða til Hafnarfjarðar (Fjörður). Í Firði er hægt að skipta yfir í leið 1 sem ekur síðan í gegnum Garðabæ, Kópavog og inn í miðbæ Reykjavíkur. Um helgar er endastöðin Fjörður. 
  • Greiðslur. Hægt er að greiða bæði með reiðufé eða snertilausum greiðslukortum.  
  • Sérstök kjör. Hægt er að kaupa áskriftarkort í landsbyggðarstrætó. 

Að öðru leyti verða farþegar ekki varir við breytingar á leið 55 og allar tímasetningar á akstursleiðinni eru óbreyttar. Ný heiti á stoppistöðvum munu birtast jafnt og þétt á merkingum og í upplýsingakerfum. 

Leið 55.
Bláa línan sýnir akstursleiðina eins og hún er eftir breytingar og þær biðstöðvar sem bætast við.

Leið 55. Bláa línan sýnir akstursleiðina eins og hún er eftir breytingar og þær biðstöðvar sem bætast við.

Kjóavellir nýtt heiti á stoppistöð fyrir leið 89 

Akstursleið og tímatafla leiðar 89, sem gengur frá Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ til flugvallarins er óbreytt. Stoppistöðin sem leið 89 stoppar við fær nýtt nafn, Kjóavellir (stöðin hét KEF-Airport áður). Stæði fyrir leið 89 verður áfram á sama stað og áður en til stendur að bæta þá aðstöðu.